Kirkjuritið - 01.07.1954, Síða 19

Kirkjuritið - 01.07.1954, Síða 19
BISKUPSVÍGSLAN 305 Ég opna hina heilögu bók og les þessi orð: Nú er ég • glaður yðar vegna. En ég les einnig: Hver er sjúkur, að ég sé ekki sjúkur? Ver sannur vinur presta og safnaða. Haf það hugfast, að Jesús segir: Styrk þú bræður þína. Þannig ber oss að taka þátt í gleði trúarinnar með öðrum og vera þeim til hjálpar í baráttunni. Það skal vera sameiginlegt áhugamál biskups, presta og safnaða, að menn hlusti, er Drottinn kallar á þá. Það er sagt um mann einn, að hann heyrði, að Jesús væri á ferð. Maður þessi var í hinni mestu neyð. Hvílíkt augnabiik, er við hann var sagt: Drottinn kallar á þig. En maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sínni, stökk á fætur og kom til Jesú. Þetta veri bæn vor, að þjónar kirkjunnar flytji þenna boðskap: Drottinn kallar á þig. — Það eru svo margir, sem líkjast manninum, sem sat við veginn. Við oss segir Drottinn: Kallið á hann. Guð blessi þetta starf með þjóð vorri. Guð gefi þér þá gleði, að þú megir sjá þetta starf blómg- ast. Sannleikanum trúr í kærleika skalt þú í tilsjónar- starfi þínu tileinka þér þetta orð, því að það hefir svo °ft talað til min á liðnum árum, og það segir svo: Þjónn Krists er ég orðinn samkvæmt því embætti, sem Guð hefir mér á hendur falið yðar vegna; að flytja Guðs °rð óskorað, leyndardóminn, sem nú hefir verið opinber- aður Guðs heilögu, er hann vildi gjöra kunnugt, hvílíkur er dýrðarríkdómur þessa leyndardóms, sem er Kristur Weðal yðar, von dýrðarinnar. (Kól. 1. 25—27.) Ég veit, að Guðs orð áminnir oss. En er það nóg? Guð lætur sér ekki nægja að áminna oss. Iiann gefur oss to'aft. Við oss er sagt: Þér skuluð íklæðast krafti frá hæð- uni. Þannig er talað við þig á vígsludegi þínum. Við læri- sveinana var sagt: ,,Þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður.“ (Post. 1. 8.) ■% bið Guð að veita þér þenna kraft. Ég bið þess, að Þessi játning lýsi því, sem býr í hugum presta og safnaða 20

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.