Kirkjuritið - 01.07.1954, Blaðsíða 36
322
KIRKJURITIÐ
þróunar, er tvennt nauðsynlegt, ef framtíð þjóðarinnar og
sjálfstæði á að standa föstum fótum:
Að leiðsögn kirkju og kristni sé traust. Að hún ávallt standi
vörð um helgustu og háleitustu siðakenningar og trúarhug-
myndir kristninnar — og að hún verndi og verji hinn eitt
þúsund ára gamla menningararf vorn — tungu vora og þjóð-
emi —, sem er helgasta eign hverrar þjóðar. Fylgi hin íslenzka
kirkja trúlega dæmi sinna beztu og vitrustu kirkjuhöfðingja
fyrr og síðar og starfi hún í anda þeirra, þá mun þjóðin hlíta
leiðsögn hennar.
Herra biskup íslands! Ég veit, að ég mæli fyrir munn allra
þeirra virðulegu gesta, er hér eru viðstaddir, — já, ég veit,
að ég mæli fyrir þjóðina alla, þegar ég nú ber fram þá bæn,
að hollvættir íslands að fornu og nýju styðji yður og styrki
í hinu háa og veglega embætti, er þér hafið verið vígður til
í dag. Megi blessun Guðs fylgja yður og störfum yðar.
Auk ráðherrans tóku þessir til máls:
Dr. Carl E. Lund-Quist, er færði kveðjur frá Lúterska heims-
sambandinu, en hann er framkvæmdastjóri þess. í því eru um
40 milljónir manna í öllum álfum heims.
Dr. Haraldur Sigmar, fulltrúi Hinna sameinuðu lútersku
kirkjufélaga í Vesturheimi og Hins evangelisk-lúterska kirkju-
félags íslendinga í Vesturheimi.
Dr. Richard Beck, fulltrúi Þjóðræknisfélags Vestur-íslendinga
og Hins sameinaða kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi.
Dr. Alexander Jóhannesson, rector magnificus, er færði árn-
aðaróskir Háskóla íslands og minntist þess m. a. að Háskólinn
hafði þá sæmt biskupinn sínum hæsta heiðri með því að kjósa
hann heiðursdoktor í guðfræði.
Gísli Sveinsson, fyrrum sendiherra, flutti ræðu af hálfu
kirkjuráðs.
Séra Jón Auðuns, dómprófastur, mælti fyrir minni biskups-
frúarinnar, frú Steinunnar Magnúsdóttur.
Séra Sveinbjörn Högnason, prófastur, ávarpaði biskup fyrir
hönd Prestafélags íslands.
Biskup flutti að lokum hjartnæma ræðu og þakkaði ráðherra
og ræðumönnum.
Að lokum lét ráðherra árna biskupshjónum allra heilla með
ferföldu húrrahrópi.