Kirkjuritið - 01.07.1954, Síða 45

Kirkjuritið - 01.07.1954, Síða 45
PRESTASTEFNAN 331 skemmstu á þessa leið: „Þegar vér hugleiðum þá köllun, er bíður kristins samfélags, verður oss að skiljast það og vér lifa eftir því, að þessir tímar eru tímar leikmannakirkjunnar. Hlut- verk vort er svo óumræðilega mikið og víðfeðmt, að allir kristnir menn verða að hefja sókn. Bróðir verður að ávinna bróður sinn og kraftur fagnaðarerindisins breiðast út jafnt til heimila sem vinnustöðva.“ Þér prestar verðið að gerast forystumenn þeirra samtaka með þjóð vorri. Kirkjan er lifandi samfélag. Vér megum engir standa uppi einangraðir. „Við leikmenn bíðum eftir kalli ykkar Prestanna,“ sagði einn þeirra við mig nýlega. „Við þráum starf, mikið starf fyrir kristni og kirkju, sókn yfir alla línuna. Kveðjið okkur til fylgdar." Alveg um sama leyti berst mér langt mál frá öðrum leikmanni. Hann ritar um deyfð og drunga yfir kristnilífi þjóðarinnar, en bendir jafnframt á ráð til bóta: Samstarf allra áhugamanna um andleg mál og siðgæði í hvaða stöðu sem er. Prestar og leikmenn standi saman hlið við hlið í stríðinu helga fyrir sigri fagnaðarerindisins. Að lokum bendir hann á gildi þess, að tveir og tveir ferðist um landið, prestur og leikmaður saman, og hvetji til samtaka og samvinnu að kristindómsmálum. Er það tilviljun, að þessar raddir heyrast? Nei. Þær eru vottur þess, að um allt landið er horft vakandi augum á andlegan hag þjóðarinnar og ýmsir eiga djúpan skilning á því, að kristindómurinn einn megnar að verða henni aflvaki trúar og siðgæðis, og að ekkert er þráð heitar en sam- vinna allra stétta til viðreisnar. Og það er ekki heldur tilviljun, að báðir þessir menn eru úr kennarastétt, þeirri stétt, sem nálega hefir verið tízka undan- farin ár að ásaka fyrir andstöðu við kristni og kirkju. Það er vissulega kominn tími til að athuga það mál betur og læra að meta stéttir þjóðarinnar eftir því, sem þær leggja bezt til, en ekki lakast. Ég gæti nefnt mörg dæmi þess, að einmitt nú er ákjósanlegasta tækifæri fyrir þessar tvær stéttir, sem þjóðaruppeldið er falið, kennimenn og kennara, að taka hönd- um saman. Forystumenn kennarastéttarinnar hafa látið þá ósk í ljós hver af öðrum. Og minnisstætt verður mér jafnan, er ég kvaddi í vetur nemendur mína í Kennaraskólanum, að einn í efsta bekk reis úr sæti og sagði af mikilli einlægni og krafti: „Við bjóðum samvinnu okkar, öll, fyrir kristindóminn.“

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.