Kirkjuritið - 01.07.1954, Blaðsíða 52
338
KIRKJURITIÐ
aði sem bezt. Orð Rasks áttu við um hann: „Ég læri íslenzku
til þess að læra að hugsa eins og maður, til þess að stæla svo
sál mína, að hún kjósi miklu heldur að skilja við líkamann
en brjóta á móti nokkru því, sem hún veit, að er satt og rétt.“
Ég bið yður að votta þessum bræðrum vorum virðingu og
þökk og rísa úr sætum. Góður Guð varðveiti þá og blessi um
alla eilífð, ástvini þeirra og störf fyrir kirkju sína.
Fjórar prestsekkjur hafa látizt á synodusárinu:
Frú Helga Skúladóttir. Hún var fædd 9. marz 1866. Dóttir
Skúla Kristjánssonar bónda á Sigríðarstöðum í Fnjóskadal.
Hún giftist 6. júlí 1886 séra Pétri Jónssyni, sem þá var prestur
á Hálsi, síðar að Kálfafellsstað. Frú Helga andaðist 17. júlí.
Frú Líney Sigurjónsdóttir. Hún var fædd 11. okt. 1873, al-
systir Jóhanns skálds Sigurjónssonar. Hún giftist 1894 séra
Árna Björnssyni, er síðar varð prestur að Görðum á Álftanesi
og prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi. Mann sinn missti hún
1932. Hún andaðist 8. október.
Frú Guðný Þorsteinsdóttir. Hún var fædd 22. marz 1865.
Dóttir séra Þorsteins Þórarinssonar, prests í Heydölum. Hún
giftist 1891 séra Jóni Guðmundssyni, presti á Norðfirði og
prófasti í Suður-Múlaprófastsdæmi. Hún missti hann 1929. Frú
Guðný andaðist 27. ágúst.
Frú Margrét Jónasdóttir. Hún var fædd 16. des. 1867. Dóttir
séra Jónasar Guðmundssonar prests á Staðarhrauni. Hún gift'
ist 1887 séra Guðlaugi Guðmundssyni, er síðast var prestur
að Stað í Steingrímsfirði. Hún missti mann sinn 1931. Frú
Margrét andaðist 12. mars.
Vér minnumst þessara merku og ágætu kvenna, sem stóðu
vel og trúlega við hlið mönnum sínum, með virðingu og þökk
og fyrirbæn og rísum úr sætum.
Lausn frá prestsskap hafa 4 prestar fengið á þessu vori. Eru
þeir þessir, sem nú skal greina:
Séra Jósef Jónsson, prófastur að Setbergi í Eyrarsveit. Hann
vígðist til Barðsprestakalls í Fljótum vorið 1915, var aðstoðar-
prestur séra Jóns Halldórssonar á Sauðanesi 1916—1918, settur
prestur í Staðarhólsþingum 1918—1919, fékk þá veitingu fyrir