Kirkjuritið - 01.07.1954, Blaðsíða 65
PRESTASTEFNAN
351
til þess að bæta það upp að einhverju leyti, ákvað Prestaíélags-
stjórnin að stækka Kirkjuritið og láta það koma út 10 sinnum
a ári. Víðförli, Bjarmi og Ljósberinn koma út sem áður. Safn-
aðarblöðum fjölgar. Auk Æskulýðsblaðsins á Akureyri, Geisla
á Bíldudal, Safnaðarblaðs dómkirkjunnar í Reykjavík má þar
t. d. nefna blöð á Húsavík, Siglufirði, í Vallaprestakalli í
Svarfaðardal og blað Biblíufélagsins í Dalaprófastsdæmi.
Þessir prestar hafa átt merkisafmæli á árinu, svo að mér sé
kunnugt:
1. Séra Þorgeir Jónsson á Eskifirði varð sextugur 28. júní.
2. Séra Einar Guðnason í Reykholti varð fimmtugur 19. júlí.
3. Séra Sigurður Haukdal að Bergþórshvoli varð fimmtugur
7. ágúst.
4. Séra Þórður Oddgeirsson prófastur á Sauðanesi varð sjö-
tugur 1. sept.
5. Séra Ásgeir Ásgeirsson, f. prestur og prófastur að Hvammi
í Dölum, varð 75 ára 22. september.
6. Séra Jón Norðfjörð Jóhannesson, f. prestur að Stað í
Steingrímsfirði, átti 75 ára afmæli 6. október.
7. Séra Sigurður Stefánsson að Möðruvöllum varð fimmtugur
10. nóvember.
8- Séra Haraldur Þórarinsson, f. prestur í Mjóafirði, varð
85 ára 14. desember.
9- Séra Jósef Jónsson, f. prestur og prófastur að Setbergi,
átti 65 ára afmæli 24. desember.
10. Séra Vilhjálmur Briem, f. prestur að Staðarstað, varð 85
ára 18. janúar.
11- Séra Jakob Jónsson í Reykjavík varð fimmtugur 20. janúar.
12. Séra Björn Magnússon, prófessor, varð fimmtugur 17. maí.
13. Séra Gunnar Jóhannesson að Skarði varð fimmtugur 7. júní.
Ollum þessum mönnum viljum vér árna gæfu og blessunar
°S flyt ég þeim í nafni kirkjunnar þakkir fyrir störf þeirra.
Skýrslu minni er nú lokið að öðru en því, að síðar verður
Sreint frá messum og altarisgöngum. Sjái menn ástæðu til að
Sjöra skýrsluna fyllri, mun það að sjálfsögðu tekið til athug-
unar, og ef eitthvað kann að vera missagt, er skylt að hafa
Það, er sannara reynist.