Kirkjuritið - 01.07.1954, Side 70
356
KIRKJURITIÐ
sér fyrir því, í samvinnu við félög og stofnanir, þar sem það
hefur ekki verið tekið upp enn.
Friðarstarf lút. kirkna. í tilefni af heimsókn framkvæmda-
stjóra alþjóðasambands lúterskra kirkna, dr. Carl E. Lund-
Quist, lýsir prestastefna íslands því yfir, að hún telur, að ís-
lenzku kirkjunni beri eftir megni að taka þátt í baráttu og
starfi lútersku kirknanna fyrir bræðralagi og góðri sambúð
meðal þjóða.
Helgidagalöggjöf. Prestastefnan harmar það, hve lög um al-
mannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar eru illa haldin víða um
land, og felur biskupi að koma þeim tilmælum til allra lög-
reglustjóra á landinu, að þeir framfylgi lögum þessum og veiti
ekki undanþágur frá þeim nema í samráði við hlutaðeigandi
sóknarpresta.
Hinn almenni bænadagur. Prestastefnan lýsir ánægju sinni
yfir því, hversu mikla hylli hinn almenn bænadagur hefir þegar
hlotið með þjóðinni og skorar fast á alla söfnuði landsins að
efla sem mest helgi og áhrif þessa dags framvegis.
*
Erlendar fréttir.
Kirkja Ansgars?
Nýlega hefir komið í Ijós við fornmenjagröft undir Slésvíkur-
kirkju kór rómanskrar kirkju, að líkindum frá 9. öld. Ætla
menn, að Ansgar hafi reist.
60 þúsund manns sækja kirkjuþing í Leipzig.
í síðustu viku var þing þýzku mótmælendakirkjunnar haldið
í Leipzig. Er það í fyrsta skipti, sem þingið er haldið í Austur-
Þýzkalandi.
Þetta þing er það sjötta í röðinni síðan heimsstyrjöldinni
síðari lauk.
í tilefni af þinginu var aflétt hömlum á ferðum milli Austur-
og Vestur-Þýzkalands. Til Leipzig streymdu 60.000 mótmælend-
ur víðs vegar að úr Þýzkalandi.
Þingfundir voru haldnir í sýningarskála Sovétríkjanna á
vörusýningarsvæðinu mikla á Leipzig.