Kirkjuritið - 01.08.1955, Síða 23
PRESTASTEFNAN 1955
309
Séra Þórður er góðmenni og glæsimenni, sem vill í hvívetna
vinna það gagn, er hann má. Hefir hann fyrir það orðið vin-
sæll af mörgum. Prestsverk sín hefir hann viljað vanda sem
bezt, og hefir fögur rödd hans prýtt alla altarisþjónustu. Hann
leggur nú með söknuði frá sér hirðisstafinn eftir 45 ára þjón-
ustu.
Prestum þessum votta ég alúðarþakkir fyrir góð störf í þágu
kirkju og kristni lands vors og bið Guð að blessa árangurinn
°g þá sjálfa og ástvini þeirra. Vottum þeim virðingu og þökk
uieð því að rísa úr sætum.
I prestastétt hafa bæzt nýir menn, sem hér segir:
Séra Stefán Lárusson, er var vígður 26. séptember sem settur
Prestur að Stað í Grunnavík. Hann er fæddur að Miklabæ í
Skagafirði 18. nóvember 1928. Foreldrar: Séra Lárus Arnórs-
son prestur í Miklabæ og Guðrún Björnsdóttir kona hans. Hann
iauk stúdentsprófi á Akureyri vorið 1950 og embættisprófi í
guðfræði vorið 1954.
Séra Guömundur Óli Ólafsson, er vígður var 5. þ. m. til
Skálholtsprestakalls í Árnessprófastsdæmi. Hann er fæddur í
Reykjavík 5. desember 1927. Foreldrar: Ólafur Guðmundsson
trésmiður í Reykjavik og Hallfríður Bjarnadóttir kona hans.
Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík vorið 1949 og embættis-
prófi í guðfræði vorið 1953. Veturinn 1953—54 dvaldist hann
við framhaldsnám í Þýzkalandi. Hann er kvæntur Önnu Magnús-
dóttur úr Ólafsvík.
Séra Ólafur Skúlason, er vígður var 5. þ. m. til starfa fyrir
Hið evangelisk-lúterska kirkjufélag íslendinga í Vesturheimi.
Hann er fæddur í Birtingaholti 30. desember 1929. Foreldrar:
Skúli Oddleifsson eftirlitsmaður og Sigríður Ágústsdóttir kona
hens. Hann lauk stúdentsprófi við Verzlunarskólann í Reykjavík
Vorið 1952 og embættisprófi í guðfræði vorið 1955. Hann er
kvæntur Ebbu Sigurðardóttur úr Reykjavík.
Séra Rögnvaldur Jónsson, er vígður var 5. þ. m. sem settur
Pfestur í Ögurþingum í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi. Hann
er fæddur í Neskaupstað í Norðfirði 7. september 1928. For-
eldrar: Jón Sveinsson cand. phil. og Guðrún Karlsdóttir kona
hans. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1948. Stundaöi
sagnfræði við háskólann í Oslo 1948—49 og síðan nokkra mán-