Kirkjuritið - 01.06.1956, Page 7
UM ALKIRKJURAÐIÐ
245
Hugleiðingastuncl eins vinmiflokks.
ráðsins frá mörgum kirkjum víðs vegar um heim. Þegar flóðin
geisuðu í Indlandi, barst indversku kirkjunni hjálp með sams
konar hætti. 450 fulltrúar Alkirkjuráðsins starfa í flóttamanna-
þjónustunni um víða veröld og leitast við að hjálpa þeim, sem
misst hafa heimili sín og ættjörð til að flytja úr landi, eða
fá nýja vinnu og einhvers konar „heimili“ á nýjum stað. Já, oft
fer svo, að aðeins sameiginlegt átak kemur einhverju verulegu
°g gagnlegu til leiðar, en hinar einstöku kirkjur fengju engu
áorkað. Það er hinn rétti staður og stund Alkirkjuráðsins að starfa
a slíkum vetvangi.
Einingin er ekki takmark í sjálfu sér. Kristur bað: ,,Allir eiga
þeir að vera eitt, til þess að hemurinn skuli trúa.“ Það er sam-
eiginlegt hlutverk vor allra að boða heiminum drottinvald Krists.
°g á þessu sviði mæta oss sameiginleg vandamál. Vér getum