Kirkjuritið - 01.06.1956, Side 47
285
REYKJAHLÍÐARKIRKJA
Upphaflega munu áheitin á Strandarkirkju hafa hafizt vegna merkilegra
atburða, er skeðu við kirkjuna og í nágrenni hennar, sem kunnugt er af
sögnum. Víðar um land hafa merkilegir og frásagnar verðir atburðir gerzt
Yið kirkjur.
I Leirhnúksgosinu 1729 rann mikið hraunflóð í samfelldri hraunelfu
niður í norðurhluta Mývatnssveitar, breiddist þar út yfir engjar og tún og
eyðilagði 3 bæi, þ. á. m. gamla Reykjahlíðarbæinn, en kirkjuna sakaði ekki.
Hafa þo aðeins fáir metrar verið á milli kirkjunnar og bæjarins, sem hraun-
flóðið velti sér yfir og bókstaflega kaffærði. Má þarna líta þá merkilegu sjón,
að hraunið rennur að kirkjugarðinum, en spyrnir þar við fótum og hleðst
upp í háan hraunkamb, beygir síðan framhjá og í hring utan um grasflötina,
sem kirkjan stendur á. Á þessari grasflöt og í þessu hraunrjóðri innan hins
sterka bergkastala virðist kirkjan vel geymd um ár og aldir. Mörgum hefir
°rðið þessi atburður að íhugunarefni. Hvaða „hulinn verndarkraftur“ hlífði
hér kirkjunni?
Ekki get eg efast um, að áheit á Reykjahlíðarkirkju, lienni til viðhalds á
þessum merkilega stað — hinni frægu grasflöt, muni vel gefast. Er þegar
bafinn vísir að þessu með nokkrum áheitum, og hafa vel gefizt.
bleð línum þessum vildi ég kynna merkan atburð úr sögu kirkjunnar í
Reykjahlíð, og um leið opna nýjan farveg þeim, sem nota vilja áheitaleið-
ina í þarfir kirkna, þeim til viðhalds.
Aheitum og gjöfum til Reykjahlíðarkirkju verður þakksamlega veitt við-
taka af undirritaðum og skráð í áheitabók kirkjunnar.
Vogum við Mývatn, 20. maí 1956.
Sigfús Hallgrímsson.
{ Toifleiufftr fréttir |
4—■■—■■—<■—«.—..—■■—...—....—...—„—„—„4
Finnar munu gefa kirkjuklukku til væntanlegrar Skálholtskirkju auk
tveggja frá Svíum og einnar frá Norðmönnum.
Veganesti kallast bók, sem verið er að prenta. 350 sögur og dæmi, sem
Sera Gunnar Ámason hefir þýtt og valið. Þess háttar bækur þykja nauð-
synlegar t. d. prestum og kennurum bæði við kennslu kristinna fræða og