Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1956, Qupperneq 47

Kirkjuritið - 01.10.1956, Qupperneq 47
ERLENDAK FRETTIR 389 lieitir Avery og er 37 ára gamall. Snerist tO kaþólsku á námsárum sínum við Havardháskóla í New York 1940 og rakti það til áhrifa þeirra, er hann hefði orðið fyrir við lestur rita Aristotelesar. Vígslufaðir hans var Spellmann kardínáli, sem sumir telja líklegt páfaefni. Verður fortilvera sönnuð. Maður heitir Morey Bemstein, banka- stjóri og kaupsýslumaður í Pueblo, Colorado í Bandaríkjunum. Hann hef- ur nú vakið óhemju athygli vestan hafs og raunar víða um heim sem dá- valdur. Höfuðorsökin er sú, að ung kona, frú Ruth Simmons að nafni, virð- ist í dásvefni lifa að nýju fortilveru sína, er liún hét Bridey Murphy, fædd á írlandi 1798 og dáin 1864. Bók um þessar rannsóknir er nú mesta sölu- bók í Bandarikjunum og fullyrt, að annað sjónvarps- og útvaipsefni hafi ekki vakið meiri athygli. Hitt er að sjálfsögðu enn ósannað, hver verður hin end- anlega niðurstaða viðvíkjandi skýringunum á þessum fyrirbæmm. Þess má geta að ýmsir hinna vitrustu manna á öllum öldum hafa trúað á fortilveru t. d. Pyþagoras, Plato, Milton, Goethe og Hugo, svo einhverjir seu nefndir. Og einhvemtíma lét Schopenhauer orð falla á þessa leið: „Væri eg beðinn að auðkenna Evrópu mundi ég freistast til að svara: Það er sa hluti heims- byggðarinnar, sem er haldinn þeirri ótrúlegu blekkingu, að maðurinn sé orðinn til af engu og hin venjulega fæðing sé upphaf hans fyrstu til- veru.“ Kristnir menn hafa þó almennt ekki trúað á fortilveru annarra en Drottins Jesú Krists, en sú trú kemur berlega fram í Jóhannesarguðspjalli °g Pálsbréfum. — Þessa er hér getið fyrir fróðleiks sakir, enda ekki ólík- Isgt, að senn hvað líður berist nánari fregnir af þessum málum hérlendis, hver sem niðurstaðan verður að því, er varðar gildi þessara tilrauna. —---------| Tnnlcndm* frcttir ).—------------------ - ......................i Kálfholtskirkja. Nýlega er lokið allmiklum endurbótum á Kálfholts- kirkju, Var hún klædd öll að innan, máluð utan og innan og raflýst. Er hún nú mjög snoturt kirkjuhús. — í tilefni af viðgerð kirkjunnar hafa margir orðið til þess að minnast hennar. Konur safnaðarins gáfu mjög fagurt og Vel gert altarisklæði, saumað af einni heimasætu sóknarinnar undir leiðsögn frú Unnar Ólafsdóttur listakonu, og áheit og gjafir bámst frá nokkmm sóknarbörnum og mörgum, sem flutt hafa burtu úr sókninni. Ollum þess- Urn færum vér beztu þakkir. Það er ánægjulegt að finna og sjá, hvað margir

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.