Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 8

Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 8
342 KIRKJURITIÐ mál, en eftir að þýða á 1000, sem 5% af jarðarbyggjum tala. Sala Biblíunnar er meiri en allra annarra bóka, en þó ekki meiri en svo, að 1 eintak kemur á hvert 1000 allra íbúa jarð- arinnar. Hún er útbreiddust í Noregi tiltölulega, 10 Biblíur á 1000 manns og 23 Nýja testamenti. Markmið Biblíufélaganna er það eitt að greiða Guðs orði Biblíunnar veg til allra, á því máli, er þeir skilja. Enn eiga félögin langt í land, einkum í Suðaustur-Asíu. Þar kemur aðeins ein Biblía á 10000 manns og eitt Nýja testamenti. Voru allir eggjaðir lögeggjan að safna miklu meira fé til útgáfu Biblíunnar, sem nú væri orðin dýrari en áður. En sízt af öllu mætti nú rifa seglin. Þessir fluttu erindi m. a.: Olivier Beguin: Hvað líður starfi Biblíufélaga vorra í dag? Dr. Ruben Josefson, skólastjóri: Hvers væntum vér af Biblíunni? Dr. Norman T. Cockburn, aðalritari Brezka Biblíufélagsins: Suður-Ameríka og Afríka. G. O. Rosenqvist: Hvernig eigum vér að nota Biblíuna? Auk þess voru nefndarfundir, og þannig nóg að starfa frá morgni til kvölds. Þegar langt var liðið á fundinn, kom Berggrav biskup, sem áður var formaður Sameinuðu Biblíufélaganna. Þótti mér mjög vænt um það að geta rifjað upp aftur eldri kynni mín við hann. Hann hefir legið þungar legur og honum ekki ver- ið hugað líf. En viljaþrótturinn og trúin halda uppi lífi hans. Hann flutti síðustu morgunbænirnar á fundinum, bað hann sérstaklega fyrir Islendingum og að landhelgismál þeirra mættu leysast farsællega. Skömmu eftir bænirnar skildumst við fundarmenn. Það var morguninn 21.ágúst. Sólin skein skært yfir Hurdalvatni og skógarlundunum. Fánarnir fimm blöktu hátíðlega. Hönd- um var veifað i kveðjuskyni. Berggrav var seztur í lítinn bil við hliðina á syni sinum. Kveðja hans var síðasta kveðjan til mín. Fundasókn minni var lokið að þessu sinni. Heimförin ein eftir. Ásmundur GuSmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.