Kirkjuritið - 01.10.1958, Qupperneq 10
344
IURKJURITIÐ
veitt Sandfell í öræfum, og þjónaði hann þvi prestakalli til
1912. Síðan Staðastað 1912—22, Stað í Steingrímsfirði far-
dagaárið 1922—23, Breiðabólsstað á Skógarströnd 1923—9,
Stað í Steingrimsfirði 1929—41, Breiðabólsstað á Skógar-
strönd 1941—46. Þá var hann settur til að þjóna Mosfelli í
Grímsnesi um skeið í forföllum sóknarprests, og Ofanleitis-
prestakalli í Vestmannaeyjum 1953.
Séra Jón kvæntist 8. apríl 1904 Þuriði Filippusdóttur frá
Gufunesi. Hún var búkona og dugnaðarkona hin mesta og
kvenna fríðust. Þau eignuðust 3 dætur, sem nú eru allar hús-
freyjur í Reykjavík. Frú Þuríður lézt 21.febrúar 1936.
Ég kynntist séra Jóni fyrst, er hann var prestur á Staða-
stað. Þá var haldinn þar héraðsfundur. Gestrisni og viðtökur
þeirra hjóna voru með ágætum. Séra Jón prédikaði þá í Búða-
kirkju, og man ég enn úr ræðu hans eftir öll þessi ár. Prests-
störf fóru honum vel úr hendi.
Við fórum saman austur í öræfi, þegar Hofskirkja var
vigð 1954, og sagði hann mér margt frá árum sínum þar,
m. a. björgun skipbrotsmanna og hjúkrun á heimili hans og
öðrum heimilum öræfinga. Auðfundið var, hve hann hafði
fest þarna djúpar rætur, enda mun honum hvergi hafa liðið
betur. Hann ferðaðist um milli þeirra, sem hann hafði skírt
og fermt, og annarra vina sinna, og mér fannst hann eins og
yngjast allur upp við þessa heimsókn. Hann var auðsjáan-
lega aufúsugestur.
Hann var jafnan vel látinn af safnaðarfólki sínu, hvar sem
hann dvaldist. Hann var glaður og reifur og skemmtilegur
í tali. Heimili þeirra hjóna laðaði fólk að sér, og urðu þau
ástsæl af söfnuðunum.
Séra Jón var skyldurækinn embættismaður og naut sín þá
bezt, er hann gat veitt bót við andlegum og líkamlegum
meinum. Kirkjunni unni hann af alhug, henni vildi hann
vinna það, sem hann vann. Við, sem þekktum ástúðlegan
bróðurhug hans, söknum hans úr hóp okkar. Við óskum hon-
um blessunar á feginsdegi ástvina og nýrra starfa á Guðs
vegum handan við hafið. Á. G.