Kirkjuritið - 01.10.1958, Blaðsíða 13
KIRKJURITIÐ
347
Allir vita, að kristin kirkja hefir frá öndverðu átt öndvegi
sitt á Vesturlöndum og síðar einnig vestan hafs og í Nýju
álfu. En síðustu aldirnar hafa „kristnar“ þjóðir sótt mjög á
hinar fjölmennu þjóðir Asíu og Afríku í tvennum skilningi:
Með trúboð sitt og landvinninga. Þótt þetta eigi að vera al-
gerlega óskyld mál, verður því ekki neitað, að sömu mennirn-
ir virðast oft hafa unnið að hvoru tveggja í sama tilgangi.
Orðtakið um Bretann, að hann leiti alls staðar auðlinda með
sverðið í annarri hendi en Biblíuna í hinni, sannar það. Og
mótblásturinn, jafnvel ofsóknirnar, sem kristin kirkja hefir
víða orðið fyrir í Asíu og Afriku síðustu áratugina, þar sem
fornar nýlenduþjóðir hafa endurheimt frelsi sitt, stafar af
þessu. Kínverjar flestir og margir, sem líkt er ástatt um, telja
kristinn mann sama og hvítramannadindil og útsendara ev-
rópískra yfirdrottnara. Því eru þeir hataðir og ofsóttir, teknir
af lífi eða reknir úr landi. Því verður ekki neitað, að þetta á
stundum við bein rök að styðjast. Ekki síður óbein. Flestar
trúboðskirkjur liafa fylgt evrópísku kirkjuformi út i æsar að
kalla, einnig vesturlenzkum siðvenjum á flestum öðrum svið-
um, en vanmetið og barizt gegn öllu — einnig góðu — í trú
og siðum hinna innfæddu. Þetta var unnt, meðan „kristnir
menn“ gátu leikið hlutverk heimsdrottnarans. Nú er það
vægast sagt orðið vafasamt. Og þá virðist kirkjunni, ekki sízt
hinni kaþólsku, vera orðið ljóst, að hún á um tvennt að velja:
Annað hvort að vera eingöngu kirkja hvítra manna og halda
þá fast við einstrengingslegar reglur í trú og siðum, eða al-
heimskirkja, sem hlýtur að verða mjög margbreytileg í öll-
um ytri formum og að sumu leyti að kenningu, eftir þvi í
hvaða landi hún starfar. Þess eru merk dæmi í sögunni, eink-
um af starfi Jesúíta bæði í Kína og Suður-Ameríku, að trú-
boðar hafa framfylgt hinni siðamefndu stefnu. En fram að
þessu hefir fyrr eða síðar verið fyrir það girt af yfirstjóm
kirknanna, af undanlátssemi við heimsdrottnana. Píus páfi
12. mun lengi hafa haft hug á að breyta til á þessu sviði, en
ekki fengið því framgengt fyrr en nú.
Biondi heitir rauði páfinn og er maður mjög aldurhniginn.