Kirkjuritið - 01.10.1958, Qupperneq 16
350
KIRKJURITIÐ
landhelginni, heldur vegna þess, að okkur er það ekki einum
lífshagsmunamál, heldur öðrum þjóðum nauðsyn, að komið
sé í veg fyrir ofveiði. Ég hefði kosið, að okkur sjálfum hefði
heldur ekki liðizt togveiðar innan 12 mílna svæðisins. tJr því
má bæta.
Grátbroslegt er að heyra Bretann halda því fram, að við
höfum ekki rétt til að helga okkur þetta litla svæði af land-
grunninu, — sem er svo örlítið, þegar að er gáð, -—- á sama
tíma og þeir meina mönnum siglingar um víðáttumikil svæði
á úthöfunum, þegar þeir eru að reyna þar manndrápssprengj-
ur eða við flotaæfingar. Auk þess sem þeir kasta eign sinni á
allan sjávarbotninn margar mílur frá ströndinni, ef þar er
von um einhver verðmæti.
Hernaðaraðgerðir þeirra hér við land eru líkastar því sem
jötunvaxinn hermaður mundi byssusting að litlu, varnarlausu
barni, og hóti því að skjóta það, ef það geri ekki allt eins og
honum sýnist. Slíkt er ekki þeim mönnum sæmandi, sem
kenna sig við Krist. Slík „kristni“ minnir á sögu Thor Heyer-
dahls af því, er Perúbúar ýmist drápu niður íbúa Páskaeyjar
eða hnepptu þá í þrældóm 1862. En lögðu síðan ekki úr höfn
eftir hryðjuverkin, fyrr en þeir voru búnir að halda upp á
jólin. Svona „kristindómur“ hefir um aldir gert Kristi og
kirkju hans meira ógagn en allar ofsóknir, níð og hvers konar
andstaða.
Grjótkastið á enska sendiherrabústaðinn voru hrópleg mis-
tök og mikil vansæmd unglingunum, sem þar voru að verki,
þótt þeir fremdu þetta af óvitahætti. Við hötum ekki Breta,
enda vitum við, að brezkur almenningur stendur hér ekki að
baki. Meðal hans eru margir á okkar bandi, og verða æ fleiri,
þegar reykský áróðursins hefir lagt sig og þeir vita betur.
En við megum ekki láta undan. Engin kynslóð hefir rétt
til að búa niðjum sínum hörmung og ófrelsi vitandi vits.
Þess vegna taka allir íslendingar höndum saman um að gæta
réttar sins í þessu máli, og allt innbyrðis nöldur út af ]w
verður að þagna. Þetta er ekkert mál stjórnmálamanna né
stjórnmálaflokka á Islandi, heldur málstaður Islands og ls-