Kirkjuritið - 01.10.1958, Side 17

Kirkjuritið - 01.10.1958, Side 17
KXRKJURITIÐ 351 lendinga. Og vonandi getur einhuga og einbeitt barátta allra landsmanna á þessum vettvangi kennt okkur að standa lika saman um mörg önnur þjóðþrifamál og taka upp hollari ritvenjur. Engin stjarna. „Unnendur“ islenzkrar menningar tóku rögg á sig í sumar og buðu Mykle hingað heim. Ef til vill átti það líka að vera gróðamál. Varð hvorugt. Almenningur var þegar til kastanna kom búinn að átta sig á, að „Roðasteinninn“ var leirborinn köggull, en enginn demantur. Og höfundurinn sjálfur engin stjarna, heldur „gervieldflaug", sem ekki einu sinni okkar fær- ustu kunnáttumönnum tókst að skjóta á loft. Þrátt fyrir allt reyndist íslenzk þjóðmenning svo sterk og lifandi, að hún hafnaði að síðustu þessum „söng“ jafn þegj- andi og hljóðalaust og ýmsum stundarskarkala í i'itvarpinu, sem allir skrúfa fyrir. Y firlýsing. Eftirfarandi yfirlýsing er tekin úr gamla KirkjublaSinu (1-árg. 5. tbl.). Hún er svo umhugsunarverð um hugsunar- hátt þátímans öðrum þræði, en snilld sálmaskáldsins að hin- um, að ég hygg, að margir hafi bæði gaman og gott af að lesa hana: „Biskupinn yfir Islandi hefir með embættisbréfi 20. f. m. sent mér alvarlega áminningu út af grein minni, er prentuð yar í 16. bl. „Norðurljóssins1, þ. á. og er um trúarágreining landa vorra í Vesturheimi. Bréfið er ritað með þeirri rök- semd, snilld og hógværð, sem herra biskupinum er lagin, og fyrir því er mér næsta ljúft og kært að geta hér með látið að áminningu hans og áskorun. Áminningu hans þarf eigi hér að birta, en áskorun hans er sú, að ég yfirlýsi opinber- lega, að ég hafi ritað öll hin svæsnu orð i téðri grein minni, er valdið geti hneyksli, með ofmiklum hita og í bráðræði. Þetta kannast ég við og beiðist afsökunar fyrir. Ennfremur skorar

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.