Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 28

Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 28
362 KIRK JURITIÐ var hann prestur til Keldnaþinga á Rangárvöllum og bjó á Stokkalæk. Varð bráðkvaddur einn á ferð 22. des. 1836, á sextugasta og öðru ári. Hafði hann komið að Eyri siðla dags, og var boðin næturgisting. Fannst prestur örendur daginn eftir skammt fyrir neðan Kambshól í Svinadal. Var hann að koma fyrir sveitarómaga.. Snjór var mikill á jörðu og þvi mikil ófærð. Kona hans hét Guðrún Arngrimsdóttir, en synir þeirra voru séra Jón, prestur og prófastur á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, faðir séra Sæ- mundar í Hraungerði, föður séra Ölafs í Hraungerði og Geirs vigslu- biskups á Akureyri. Var séra Iialldór þannig langafi þeirra Hraungerðis- bræðra. Annar sonur séra Halldórs var séra Amgrimur á Bægisá. Yfir leiði séra Halldórs í Saurbæjarkirkjugarði hefir verið lagður flatur steinn með áletrun. Ellefti prestur: Amgrimur Halldórsson, þess síðastnefnda. Vigður 1836. Hann hefir þjónað í Saurbæ frá jólum 1836 að liikndum til fardaga 1838, þar til séra Ólafur Hjaltested kom, og að mestu leyti (1 ór) fyrir hann. Var siðar í 20 ár (1843—1863) prestur að Bægisá í Eyjafjarðarsýslu. Kona hans, Guðrún Magnúsdóttir frá Þorlákshöfn, missti vitið og varð sveitlæg um siðir. Um séra Arngrím hefi ég heyrt eina visu, sem ekki er eftir hafandi (niðvísa). Tólfti presturinn er merkispresturinn séra Ólafur Hjaltested. Kom hann árið 1838 og var í Í0y2 ár. Var sonur Einars Hjaltesteds verzlunar- stjóra á Akureyri. Séra Ólafur var hinn fyrsti skólastjóri við barna- skólann í Reykjavik, áður en hann varð prestur. Hann vigðist að Saurbæ og fékk veitingu fyrir brauðinu 9. marz 1837, en flutti þangað vorið 1838, og dó þar „úr langvarandi brjóstveiki" 29. nóv. 1848 ógiftur og barnlaus. Fjáður vel og gaf eftir sinn dag Strandarhreppi tvær jarðir: Útskála- hamar i Kjós og Jörfa á Kjalarnesi; einnig 800 ríkisdali, og skyldi verja ársvöxtum til jarðabóta í Strandarhreppi. Vom þannig komnir 2 gjafa- sjóðir (legöt) í sókninni og hreppnum. Séra Ólafur Hjaltested hafði aldrei mikinn búskap i Saurbæ. Fyrstu 6 árin hefir hann verið hjá bróður sinum, Georg Pétri, sem bjó þar og var hreppstjóri. Hann (þ. e. G. Pétur) dó 20. júní 1846 úr mislingum (hinum fyrstu, er gengu yfir landið og voru hinir mannskæðustu). Átti 8 börn með konu sinni Guðriði Magnúsdóttur. Hún var siðasta árið bú- stýra hjá séra Ólafi. En i tvibýlinu 1845—1847 var bústýra hans Guðrún dóttir þeirra Péturs og Guðríðar. Hún giftist vorið 1847 Guðm. E. Jóns- sen presti að Möðruvallaklaustri, síðar Arnarbæli. Séra Ólafur Hjaltested var listaskrifari, og er hrein snilld á allri prestsþjónustu-bókfærslu hans. Voru þær bækur við prestakallið, er ég tók við, en eru nú fyrir alllöngu

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.