Kirkjuritið - 01.10.1958, Blaðsíða 40
Fáein minningarorð.
Jón Jónsson Maron lézt að heimili sínu
á Bíldudal 2. janúar þ. á. Hann var fæddur
24. október 1883 að Halakoti á Álftanesi,
sonur hjónanna Jóns Hallgrimssonar og
Guðnýjar Jónsdóttur. Á árinu 1901 flutt-
ist hann með foreldrum sinum að Bakka í
Ketildalahreppi. Þar kvæntist hann á ár-
inu 1904 fyrri konu sinni, Margréti Gísla-
dóttur. Eignuðust þau tvo syni: Jón Hall"
grímsson og Guðbjart. Á árinu 1910 flytja
þau hjónin með syni sina til Bíldudals, og
áttu þar alltaf heima síðan. Á árinu 1915
misstu þau hjónin Guðbjart son sinn, en
hann lézt á Bíldudal. 1 október 1918 niissti Maron Margréti konu sína.
En i april 1922 lézt Jón Hallgrímsson sonur hans á heilsuhæli i Kaup-
mannahöfn. 30. júní 1922 kvæntist Maron eftirlifandi konu sinni, Bjarn-
friði Sigurðardóttur. Þau voru barnlaus, en tóku til sin Ingveldi Sigurðar-
dóttur, sem þá var um fermingaraldur, og var hún hjá þeim nærri tvo
tugi ára, eða þar til hún giftist Jóni G. Jónssyni hreppstjóra. Hefir Ing-
veldur ætið búið í næsta nágrenni við fósturforeldra sína.
Með Jóni J. Maron er fallinn i valinn einn hinna merkustu Bílddæl-
inga, enda kom hann mikið við sögu staðarins um tugi ára. Frá 1943 og
allt til dánardags var hann í sóknarnefnd og hafði alltaf á þeim tíma
með fjárhald kirkjunnar að gera. Um líkt skeið var hann meðhjálpari
í Bildudalskirkju. Á þeim tima, sem hann var í sóknamefnd, fóru fram
stórkostlegar endurbætur á kirkjuhúsinu. Og þegar um var að ræða
framkvæmdir i þágu kirkjunnar, var aldrei fjár vant hjá Maron. Margar
dýrmætar, fagrar gjafir hárust kirkjunni frá heimili hans. Sýndi hann
það oft í verki, hversu hann unni kirkju sinni og bar hag hennar fyrir
brjósti. Samstarfið við hann á því sviði var frábært, ómetanlegt og ógleym-
anlegt. —
Jón J. Maron var traustur, hreinskilinn og drenglyndur. Hann var