Kirkjuritið - 01.10.1958, Blaðsíða 41
KIRKJURITIÐ
375
einbeittur og skapfastur, hélt fast á skoðun sinni og var ])á stundum
þungorður. En þegar málið var útrætt af hans hálfu, erfði hann ekki
harða mótstöðu andstæðingsins, heldur var honum jafn hollráður og
hjálpsamur og áður. En til hans þurftu margir að leita, enda var hann
greiðvikinn og hjálpfús. Hann var starfsmaður mikill og ósérhlífinn,
hvort sem hann vann fyrir sig sjálfan eða opinberan aðila. Hann var
félagslyndur og oft gamansamur. Var oft kátt á hjalla, þar sem hann
var með i hópnum. Og aldrei skorti umræðuefni, þar sem hann var nær-
staddur. En það er líka gott að leita styrks hjá honum á erfiðleikastund-
um. Hann var fús að miðla öðrum af sinni miklu lífsreynslu. Þá kom
einmitt í ljós hin trausta trú hans, sem alltaf var honum hjálp í erfið-
leikum. Með honum féll í valinn góður drengur, einn hinna dyggu,
traustu leikmanna í þjónustu kirkjunnar. Blessuð sé minnnig hans.
Jón Kr. Isfeld.
Karl Á. Sigurgeirsson, Bjargi.
— Minningaror'd. —
Að aflokinni messugjörð á Staðarbakka
25. júní 1893 var haldinn almennur safn-
aðarfundur. Sá fundur var í engu frá-
brugðinn venjulegum fundum af því tagi.
En þar var kosinn í fyrsta sinni ungur
bóndi bæði safnaðarfulltrúi og sóknarnefnd-
armaður, Karl Sigurgeirsson á Bjargi. Það
var ekkert stundarfyrirbæri, að Karl gegndi
þessum störfum fyrir kirkju sina og söfnuð,
því að hann var í sóknarnefnd um 30 , ár
og safnaðarfulltrúi tæp 60 ár.
Karl var Þingeyingur að uppruna, fædd-
ur i Svartárkoti í Bárðardal 2. okt. 1863, en
fluttist í æsku með foreldrum sínum og
mörgum systkinum vestur í Húnavatnssýslu. Sigurgeir faðir hans fór
síðan vestur til Ameriku með börn sín öll nema Karl og eina dóttur. Þar
tók hann sér ættamafnið Bardal, og er mikil ætt frá honum komin þar
vestra. Um 1890 reisti Karl bú á hinni fornfrægu sögujörð, Bjargi. Batt