Kirkjuritið - 01.10.1958, Qupperneq 45
KIRKJURITIÐ
379
Fólag presta í hinu forna Ilólasliili <>0 ára. Hinn 8- júní
1898 var stofnað á Sauðárkróki Félag presta i Hólastifti hinu forna. For-
göngumaður þess var séra Hjörleifur Einarsson á Undirfelli. Að lokinni
messu í hinni þá nýbyggðu, fögru Sauðárkrókskirkju, fór stofnun félags-
ins fram í húsi séra Árna Bjömssonar. Voru stofnendur aðeins 16 úr
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. Eyfirzkir og þingeyskir prestar kom-
ust þá eigi vestur yfir heiði. Var því næsta ár haldinn á Akureyri eins
konar framhalds-stofnfundur, þar sem margir voru mættir, þar á meðal
séra Matthias Jochumsson. Snemma tók svo séra Zóphonias í Viðvík við
stjórn félagsins og stjórnaði lengi, studdur af nágrannaprestum, t. d. séra
Árna Björnssyni, séra Birni á Miklabæ o. fl. prestum.
Nú á þessum 60 ára afmælisfundi voru prestar mættir hvaðanæva úr
Norðlendingafjórðungi og einnig úr öðrum landsfjórðungum. Frá Reykja-
vík var mættur formaður Prestafélags Islands, séra Jakob Jónsson, og auk
annarra af Suðurlandi séra Sigurður Pálsson frá Hraungerði, formaður
Prestafélags Suðurlands. Alls munu hafa mættir verið nær 50 prestar
og um 20 prests-maddömur.
Fundur hófst í Sauðárkrókskirkju um kl. 2 í Prestafélagi íslands. Þá
í þessu félagi Norðurlands (Hólastiftis), sem að vísu er 20 árum eldra
en hið fyrr nefnda, og er það út af fyrir sig allrar athygli vert.
Kl. 5 voru fluttir 2 fyrirlestrar i kirkjunni, þar sem allir voru vel-
komnir: Séra Sigurbjöm Einarsson prófessor (Biblian — trú — vísindi),
Jón Hnefill Aðalsteinsson (Heimspekiskoðanir Kants).
Kl. 8 um kveldið var svo almenn guðsþjónusta i kirkjunni. Þar flutti
séra Gísli Kolbeins prédikun, en séra Sigurður Guðmundsson og séra Pctur
Sigurgeirsson þjónuðu fyrir altari. í lok guðsþjónustunnar var altaris-
ganga, þar sem rúmlega 60 manns gekk til altaris, aðallega prestar og
konur þeirra. En söng og svörum stjómaði að venju hinn þekkti organ-
isti og söngstjóri Eyþór Stefánsson.
Sunnudaginn 10. ágúst hélt svo allur hinn prúði leiðangur og fleiri
þó „heim til Hóla“. Þar var hátíðarguðsþjónusta. Sigurður prófastur
Stefánsson flutti erindi um Prestafélag Hólastiftis. Séra Ingimar Ingi-
marsson, Sauðanesi, prédikaði. Kirkjukór Sauðárkróks söng.
Siðan var nokkurt hlé. Þá fluttu eftirtaldir menn stutt erindi um efn-
ið: Hvað hefir kirkjan verið mér: Séra Magnús Guðmundsson, Ólafsvík,
séra Þorleifur Kristmundsson, Kolfreyjustað, séra Kristján Róbertsson,
Akureyri, og séra Friðrik Friðriksson, Reykjavik.
Um kvöldið var hóf. Töluðu þar 6—8 menn og konur, auk formanns
og veizlustjóra, séra Helga Konráðssonar. Var veizluhald þetta skólastjóra-