Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Page 19

Kirkjuritið - 01.01.1959, Page 19
KIRKJURITIÐ 13 Allsherjarnefnd þingsins, þeir Gísli Sveinsson, Þorgeir Jóns- son, Sigurður Pálsson, Jón Ólafsson og Sigurður Gunnarsson, lagði til, að tillagan yrði samþykkt óbreytt, og féllst þingið á það og afgreiddi hana með samhljóða atkvæðum. En tillagan var á þessa leið: Kirkjuþingið ályktar að skora á Alþingi að lögleiða frumvarp það um kirkjubyggingar og þátttöku ríkissjóðs í stofnkostnaði kirkjuhúsa, sem áður hefir verið borið fram á þingi, síðast 1946, þar sem ákveðið er, að ríkissjóður beri % hluta stofnkostnaðar, en söfnuðir að öðrum hluta ásamt viðhaldskostnaði kirknanna. Telur Kirkjuþingið æskilegast og eðlilegast, að ríkisstjórnin annist um flutning þessa máls á Alþingi, en ella verði það flutt úr hópi þingmanna, enda myndi málið, ef framgang hlyti, leysa til hlítar hinn mikla vanda um kirkjubyggingar í þjóðkirkju landsins. IV. Tillaga til þingsályktunar um skilgreining á takmörkum milli þjóökirkju- og fríkirkjusafnaöa. Lögð fram af Gísla Sveins- syni. Tillögunni var visað til allsherjarnefndar, en málið varð ekki útrætt. Tillagan var svohljóðandi: Kirkjuþingið ályktar að beina því til kirkjustjórnarinnar, að hún gefi út rökstutt álit um viðhorf þjóðkirkjunnar og embætt- ismanna hennar, einkum biskups, til utanþjóðkirkjusafnaða í landinu, hver séu eðlileg og lögleg takmörk milli þessara aðila og hvort biskup íslands („biskupinn yfir íslandi") hafi gagnvart fríkirkjum rétt eða skyldur og þá hverjar. V. Áskorun um hœkkun styrks til Kirkjubyggingarsjóös, lögð fram af Ásmundi Guðmundssyni og Gísla Sveinssyni: Kirkjuþingið leyfir sér að skora á háttvirt Alþingi að hækka framlag til Kirkjubyggingasjóðs úr 500.000 kr. á ári í 1.000.000 kr. Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar, er skilaði svofelldu áliti: Allsherjarnefnd hefir á fundum sínum rætt áskorun um hækk- un styrks til Kirkjubyggingasjóðs og mælir með, að hún verði samþykkt óbreytt. Nefndin vill þó taka fram, að hún telur

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.