Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1959, Side 32

Kirkjuritið - 01.01.1959, Side 32
Séra Haraldur Þórarinsson nírœður. Ritstj. hefir lagt fast að mér að skrifa afmælisgrein um séra Hall- ald níræðan, þar sem við vorum gamlir skólabræður. — Já, skóla- bræður vorum við í 3 ár, en skóla- minningar mínar um séra Harald eiga' miklu fremur heima i sam- sætisræðu en í Kirkjuritinu, og mundu bezt njóta sín þar, sem gest- irnir væru stúdentar frá fyrri öld, er skilja betur fornar skólavenjur en nútíminn. Auk þess höfum við séra Haraldur varla talað verulega saman nema einu sinni síðan hann gerðist prestúr Múlsýslunga fyrir fullri hálfri öld. Gömul sóknarbörn hans þar eystra geta betur um hann talað en ég. Allt þetta og meira þó hefi ég tjáð ritstj., en samt vildi hann ekki sleppa mér, og af því að ég er honum stórskuldugur fyrir mikla gestrisni norður á Æsustöðum, verð ég að láta undan og skrifa hér dálítið af afmælisræðunni, sem aldrei verður haldin úr þessu. Afmælisbarnið níræða og heilsuvana var velmetinn „latínu- hestur" í 4. bekk Latínuskólans, þegar ég var þar nýsveinn vet- urinn 1891—92. Að þeirra tíma skólasið voru lítil kynni og enn minni vinátta milli efribekkinga og „busanna". Nokkur kynni hlutu þó að verða milli þeirra 28 heimasveina úr 4 neðri bekkjum skólans, er allir sváfu í „Langa-loftinu“. Haraldur, sem þá var f jarri því að ætla að verða séra, var þar í innsta rúmi, og man ég enn vel sterka rödd hans, þegar piltar voru að kveðast á — í óþökk rektors Jóns Þorkelssonar, sem svaf í næstu stofu. Annars þótti rektor vænt um Harald vegna Séra Haraldur Þórarinsson

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.