Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 43
KIRKJURITIÐ 137
herbergjum, og íbúð kirkjuvarðar. Kostnaður við bygginguna
varð 430 þús. sterlingspund.
*
Nú á Strandarkirkja rúmlega 2,67 milljónir í Almennum
kirkjusjóði. Gjafir og áheit til hennar á s. 1. ári námu kr.
210 þús. og vextir af innstæðu voru 110 þús. krónur.
*
Þessi orð hafði Vísir eftir pósti á Norðurlandi á s. 1. vetri:
„Vaðlaheiði er að sjálfsögðu lengsti og erfiðasti áfanginn,
en helzti farartálminn er Fnjóskárgilið í miklum snjóum. Þó
kvíði ég sjaldan fyrir gilinu, síðan séra Sigurður Haukur kom
að Hálsi, því að hann kemur jafnan á móti mér þangað, ef
færðin er slæm, og hjálpar mér gegnum torfærurnar. Það er
mikið öryggi í að eiga þann „hauk í horni“ þar á næstu
grösum.“
*
Ég kom heim til manns um daginn. Hann var þá nýbú-
inn að gera þessa vísu:
Fögur orð, þótt fingur riti,
fá ei umbætt spilltan heim,
nema kærleikshugur hiti
hjartað til að fylgja þeim.
Gisli Brynjólfsson.
Ég vildi heldur vera réttlátur en forseti. — Henry Clay.
Heilagur maður er gamall syndari i nýrri og endurskoðaðri útgáfu.
Það er ekki ýkjalangt, síðan unnt var að halda uppi heillangri styrjöld
yr*r það, sem eitt friðarmisseri kostar nú á dögum. — Bill Vaughan.