Kirkjuritið - 01.05.1959, Blaðsíða 4
194
KIRKJURITIÐ
að, og gjörir þau fær um að efla frið milli þjóða og
kynþátta.
Vér skulum því fagna nálægð Heilags Anda Guðs. Ber-
um á ný vitni um mátt hans til þess að gerbreyta öllu.
Vegsömum Guð og njótum ávaxta Anda hans, sem kom
til þess að leiða oss til meiri lífsfyllingar, nú og um aldur.
Bæn Williams Temple erkibiskups:
Blessaði Jesús, þú holdi klæddi kærleiki og sannleiki
Guðs, hreinsa oss af öllu því, er skyggir á eða skekkir
mynd þína. Fyll oss trausti til þín, svo að vér látum af
persónulegri keppni og hvílum í þér. Þú, ljós heimsins,
skín í hjörtu vor, svo að geislar birtu þinnar, sem vér
þekkjum úr dreifingunni, megi safnast saman í hreinan
ljóma dýrðar þinnar, er komi fram í sameining vorri við
þig. Þú lamb Guðs, sem ber burt synd heimsins, lauga
sálir vorar hreinar af synd. Sameina oss í þér og hvern
öðrum í þér fyrir leyndardóm heilagrar holdtekju þinnar,
fyrir angist þína og blóðsvita, fyrir kross þinn og kvöl
þína, fyrir dýrlega upprisu þína og himnaför, og fyrir
komu Heilags Anda, svo að vér getum orðið eitt með þér
og í þér, eins og þú ert eitt í Föðurnum, svo að heimur-
inn geti trúað því, að þú sért Frelsari hans, Guð bless-
aður um aldur.
Dr. John Bcdlie
[fulltrúi kirkju Skotlands]
Otto Dibelius bislcup
[fulltrúi Lútersku kirkjunnar
þýzku]
8. U. Barbieri biskup
[fulltrúi Meþódista kirkjunnar
í Argentínu]
Mar Thoma Juhanon
[höfuðbiskup sýrlenzku kirkjunn-
ar á Indlandi]
Henry Knox SherrUl biskup
[fulltrúi Biskupakirkju Mótmælenda, Mass.].