Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Síða 18

Kirkjuritið - 01.06.1959, Síða 18
256 KIRKJURITIÐ orð eru mikilvæg. En þá fyrst fullgild, þegar þau verða athöfn, hold. Og orðið varð hold, orðið um Guðs misk- unn, líkn hans sjálf. Og það orð er Jesús Kristur. Hann er armur Guðs opinber, hann er lófinn hlýi, sem snertir þig í hrollsvölu húmi svo, að þú veizt, að þú ert ekki einn. Hann er röddin, sem ávarpar þig á tvísýnu eða vega- lausu hjarni og segir: Þér er óhætt, þér er borgið, treystu mér. Vér trúum á Guðs miskunn, af því að vér höfum mætt henni, notið hennar, þegið hana. Þessi miskunn hans er vilji, hjálparvilji. Hún er ekki sveigjanleiki sam- sinnungsins, heldur festa, trúfesti föðurins heilaga, mark- vísi þeirrar náðar, sem ber þig og alla tilveru á krossi skapandi líknar sinnar gegn öllu, til sigurs yfir öllu, sem er grimmt og dimmt. Hann er óbilgjarn í miskunn sinni. Það er öryggi þitt. Hann hvikar ekki frá þeim lögum, sem gilda í ríki hans, ríki miskunnseminnar. Hann gefur þér ríkið til þess að þú eigir það, lifir því, sigrist af því nú og til eilífðar. Og þess vegna spyr Jesús — boðun hans verður alltaf spurning, bein og óbein: Er þetta þér satt? Að öðrum kosti ertu blindur, blindur í sjálfs sök, blindur á annarra sakir. Þetta er bjálkinn í auga þér. Hræsnari! Þú játar ekki trúna á miskunn Guðs með vörum, heldur hjarta og lífi. Guð vill heldur sýkna en dæma, gefa en taka, þjóna en drottna, fórna en ábatast? Þannig skiptir hann við þig. En þú? Er Guð og miskunn hans þér sá veru- leiki, að hann geti ekki aðeins lyft þér yfir þá raun, sem að kann að steðja af atvikanna völdum, heldur líka sigr- að hverja beiska hugsun um aðra menn? Hefir sú upp- gjöf eigin saka, sem þér er boðin í Kristi, hlýjað þér um hjartarætur, að þú fyrirgefir öðrum á sama veg? Annars er hún raunverulega ómark í augum þínum. Ef þú tekur fyrir kverkar samþjóni þínum vegna smárrar skuldar hans við þig, þá hefirðu hafnað uppgjöf eigin skuldar, mælir þig undan lögum miskunnarinnar, gerir hana ómark, strikar hana út úr tilveru þinni. Vér erum ekki fullnuma,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.