Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Síða 28

Kirkjuritið - 01.06.1959, Síða 28
266 KIRKJURITIÐ ig. Kenningin um guðlegt og mannlegt eðli Krists eins og kirkj- an hefir framsett hana í játningum sínum, hvíli á heimspeki, metafysik. í 52. kafla bókarinnar ræðir hann um guðdóm Krists. Þar segir: „Maður, sem Guð hefir nálgazt oss í með fullkomnum hætti, svo að vér höfum hann með öllu eins og hann er: það er það, sem Jesús er oss.“ Með þessu er auðvitað ekki átt við, að Jesús sé Guð. Sést það bezt af framhaldinu „Vér viljum ekki nefna hann guðmanninn, því að þar er áherzlan lögð á hið guð- dómlega sem forsenduna (udgangspunktet) fyrir ákvörðun veru hans. Vér getum frekar nefnt hann hinn góðdómlega mann. Mann, með því er sagt, að það er um mannlíf hans, sem leið vor ligg- ur til guðdóms hans einvörðungu." Sannleikurinn er sá, að leið- in að guðdómi Krists er ekki neðan að, sálfræðileg athugun á fögru mannlífi. „Menneskelivets fulde sandhed er Udgangs- punktet," segir Krarup. Það er gengið út frá því, að Kristur var sannur maður. En framhaldið er ekki, að Guð gerðist maður, heldur er það guðdómlegur maður. Hvað gerir Krarup við vitn- isburð Krists um sjálfan sig? Hann segir: „Jesús hefir með- vitund um sig sem son Guðs sem guðdómlegan: það er sem sagt forsenda vor.“ Hvernig stenzt nú þetta, að gengið er út frá sann- leika mannlífsins og meðvitund Jesú um sjálfan sig sem son Guðs? Með því að draga úr hinu síðara, útskýra það með orð- inu guðdómlegur, en ekki eins og Tómas: „Drottinn minn og Guð minn.“ Svo spyr Krarup: „Hvernig eigum vér nú að dæma um þessa guðvitund? Er hún hugsanleg?“ Vitundina um að vera „guð- legur“ nefnir hann guðvitund. En kirkjan á hér við pwðvitund, vitund um að vera Guð, ekkert minna. Síðan bendir Krarup á mynd Jesú í guðspöllunum og spyr: „Er það ekki mynd, sem ber á sér einkenni raunveruleikans ? Og er það ekki ósvikin heilbrigð sálgerð (Karakter) ? Því munu allir svara játandi, því að vér finnum tengsl við þessa mynd, skiljum hana, þrátt fyrir tign hennar.“ Krarup á við, að það sé ekki óðs manns æði að kalla sig guðdómlegan, það sé ekki annað en það, sem vér get- um sjálfir að einhverju leyti. Svo bendir hann á tvennt við mynd Jesú í guðspjöllunum, sem sýna tengslin milli Jesú og vor (þ. e. venjulegra manna): 1) „að hve hátt sem Jesús stendur og hve myndug sem orð

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.