Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Blaðsíða 36

Kirkjuritið - 01.06.1959, Blaðsíða 36
274 KIRKJURITIÐ veittur Staðastaður vorið 1901. Þegar ég hugsa um þessi orð: „Helgi Drottins dagur, dýrðarsunna þín, eins og guðdóms ásján upprennandi skín“, sé ég í ljósi minninganna fagran sunnudag. Ég kom að Staða- stað, og var við messu hjá séra Vilhjálmi. Hlustaði ég á hrein- an boðskap trúarinnar, og man hin brosandi andlit kirkjugest- anna. Minnist ég með gleði stundarinnar á gestrisnisheimili prestshjónanna. Þetta var í ágúst 1911. En á næsta vori varð séra Vilhjálmur enn að sækja um lausn frá embætti, og flutti til Reykjavíkur. Starfaði hann þar við Landsbankann og síðar við Söfnunarsjóðinn, sem séra Eiríkur Briem stofnaði 1886, og stjórnaði í 35 ár. En 1912 hóf séra Vilhjálmur starf við sjóð- inn, og tók við forstöðu hans 1921 og gegndi því starfi í 35 ár. Það áttu margir skipti við hann á þeim stað og muna festu hans og hógværð. Með trúmennsku og kostgæfni gekk hann að störfum, og drenglundað dagfar stjórnaðist af göfugu hugar- fari. Séra Vilhjálmur var aðalhvatamaður að stofnun Kristnisjóðs íslands, og á 50 ára hjúskaparafmæli sínu stofnuðu þau hjón- in Fæðingargjafasjóð íslands. Eru báðir þessir sjóðir í vörzlu biskups. Skyldi séra Vilhjálmur hafa gleymt sínu fyrra starfi? Nei. Vináttuböndin slitnuðu ekki. Séra Vilhjálmur var í sóknum þeim, er hann þjónaði, andlegur leiðtogi, og jafnframt með lífi og sál í öllum framfara- og menningarmálum héraðanna. Þótt hann lifði nær hálfa öld eftir að hann lét af prestsskap, rofn- uðu aldrei tengsl hans við sóknarbörnin. Hann var þeim alla ævi hollur ráðgjafi og vinur. Ég nefndi hátíðisdaginn 19. apríl 1894. Þá var séra Vilhjálmi gefin dýrmæt gjöf, er hann kvæntist elskulegri konu sinni, frú Steinunni Pétursdóttur. Þeirri gjöf hefir fylgt hin ríka blessun. Guð hefir vel fyrir öllu séð, og blessunin hefir náð til barn- anna, og hjá þeim sameinast minningarnar þakklæti, er kvadd- ur er hjartkær faðir og fósturfaðir. Börnin þrjú, Eggert verk- fræðingur, Gunnlaug kona Bjarna Guðmundssonar blaðafull- trúa og Unnur teiknikennari blessa minningu hins elskulega

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.