Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Qupperneq 40

Kirkjuritið - 01.06.1959, Qupperneq 40
Séra Gísli Brynjólfsson prófastur fimmtugur. Þegar ég sá það í blaði þann 23. júní síðastl., að séra Gísli Brynjólfs- son ætti fimmtugsafmæli þann dag, komu margar minningar í hug minn, allt frá bernskuárum. Ég man hinn íhugula og athugula menntaskóla- svein, dreng, en þó eiginlega full- orðinn í senn. Ég man húsið við Bergsstaðastrætið, þar sem hann bjó með móður sinni, og ég á ógleymanlegar minningar þaðan. Svo lágu leiðir okkar saman i þjónustu kirkjunnar, og ég var löngum gestur hans að Kirkjubæj- arklaustri í sumarleyfum minum. Þegar ég var kominn þangað í fyrsta skiptið, var eitt það fyrsta, sem hann spurði mig um, hvort ég kynni að slá. Og ekki var hann lengi að fá mér orfið í hendurnar. Hann hefir aldrei sjálfur etið letinnar brauð, og auðvitað var það alveg rétt hjá honum, að ég átti ekki að gera það heldur. En það var gaman að tala við hann. Alla þekkti hann um allt land. Það hafði varla komið út sá bleðill, að Gísli ekki annaðhvort ætti hann eða vissi, hvar hann var niður kominn. Ég sá oft tvo hrafna þarna nálægt bæjarburstinni, og mér meira en kom í hug, hvort þetta væru Huginn og Muninn, þótt ég aldrei þyrði að spyrja Gísla um það. En hann var ekki einleikinn þessi fróðleikur Gísla um menn og málefni um land allt. — En svo að ég sleppi öllu gamni — en okkur Gísla hefir alltaf verið erfitt að sleppa því, þegar við höfum verið saman —, þá vil ég segja þetta í tilefni af fimmtugsafmæli hans: Hann á marga vini, sem hugsa til hans með hlýju á þessum tímamót- um. Hjá honum mætti ég alltaf því, sem í þessum orðum felst: „Verið í bróðurkærleikanum ástúðlegir hver við annan.“ Ég óska séra Gísla og heimili hans blessunar Guðs, nú og um alla framtíð. Garðar Svavarsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.