Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Blaðsíða 42

Kirkjuritið - 01.06.1959, Blaðsíða 42
Guðfrœðileg sannindi. Vitrænn máttur, sem birtist í manninum og gjörir hann að trúar- og siðgæðisveru, er frumeigind tilverunnar. Bezt kemur þetta í ljós hjá hinum sannvitrustu og beztu mönnum eins og Jesú Kristi, sem guðspjallamaðurinn Jóhannes nefnir ímynd Guðs veru. Menn hafa eigi skilið þetta fyllilega, og hafa því orðið deilur um Jesúm og hjálpræðisstarf hans. Tilveran og alheimur í heild er því einstaklingsvera með eigin æðra vit- undar- og viljalífi, Guð. Vitundarlíf Guðs spennir yfir hið smæsta sem hið stærsta og skapar æðri einingu og samræmi, þrátt fyrir þær ýmsu misfellur, sem vér menn teljum oss hér greina á um, en vér eigum að sjálfsögðu mjög erfitt með að skilja og greina tilveru almennt til hlítar, vegna eigin takmark- ana og ófullkomleika. Vér greinum þó tilveru eigi aðeins í brotum skynheims vors, heldur og að meira og minna leyti í heild í rökvísri hugsun vorri, tilfinningum, trúarlífi og siðgæðislífi. Guð er einstakl- ingurinn æðsti og mesti og stórveldið æðsta og mesta, sem inni- bindur í sér hina ýmsu fjölmörgu heima með þeirra óendan- legu fjölbreytni og möguleikum. Guðsmynd manna má því eigi verða of mannleg, og þeir mega eigi týna Guði í efnis- heiminum, tilveran verður þeim þá svo að segja óskiljanleg og fjandsamleg. Vér greinum eigi aðeins hinn ytri heim, heldur og það, sem skaðar oss og batar í ýmsum skilningi efnahags- lega og andlega. Líf vort stefnir að æðri þroska og hamingju í alhliða þróun í gegnum erfiðleika og þjáningu. Vit vort og aðrar góðar eigindir þroskast í þessari reynslu, og vér lærum að greina gott frá illu og rétt frá röngu. En Guð leggur oss líkn með þrautum á ótal vegu umfram það, sem vér ófullkomnir menn fáum skynjað eða greint. Guðs æðri himneski náðarandi nálgast oss frá æðstu dýrðarheim- kynnum lífs og ljóss, léttir lífsstríðið og lyftir oss duftinu fra til æðri heimkynna.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.