Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Side 50

Kirkjuritið - 01.06.1959, Side 50
288 KIRKJURITIÐ Séra Billy Graliam hefur nú mikinn huga á því að koma sér upp útvarpsstöð nálægt heimili sínu í Suður-Carolina. Er ætlunin sú, að útvarpa fyrst og fremst ræðum hans og svo ýmsum öðrum erind- um andleg mál. Eitt er svo harðsótt, að sjaldan tekst nema einum manni eða svo að komast svo langt með hverri kynslóð: Að læra hin mestu vísindi en biðja þó sem lítið barn. Rabbe Mendel. Ég bið þess ekki heitast að vera lærður, ríkur, frægur, voldugur eða jafnvel góður, heldur geislandi persónuleiki. Mig langar til að geisla af heilbrigði, gleði, rólyndi, kjarki, góðsemi. Mig langar til að lifa án haturs, duttlunga, afbrýði, öfundar, ótta. Mig langar til að vera bláttáfram, heiðvirður, einiægur, náttúrlegur, hreinn á sál og líkama. Eg vil geta viðurkennt hiklaust, að ég viti ekki það, sem ég veit ekki, og umgangast alla menn iíkt og jafningja mína. Mæta öllum and- blæstri og erfiðleikum ótrauður og æðrulaust. Ég vil líka unna öllum allrar gæfu og gengis. Þess vegna bið ég þess, að ég blandi mér aldrei í, né láti til mín taka, eða segi fyrir um, þau mál, sem menn æskja ekki, að ég hafi afskipti af. Né neyði ég aðstoð minni upp á einn eða neinn. Ég kýs heldur að hjálpa öðrum með því að styðja þá til að hjálpa sér sjálfir. Og geti ég lyft eða göfgað, kýs ég að gera það með fyrirdæmi mínu, en ekki með beinum afskiptum né valdboði. Elbert Hubbard. t-------------------------------------------------N KIKKJURITIU Tímarit gefið út af Prestafélagi Islands, kemur út 10 sinnum á ári. Ritstjórar Ásmundur Guðmundsson og Gunnar Árnason. Árganguriim kostar 60 krónur. Afgreiðslu annast Elísabet Helgadóttir, Hringbraut 44, Reykjavík. V.. Simi 14776. Pxentsmiðjan Leiítur j

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.