Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1960, Blaðsíða 2

Kirkjuritið - 01.05.1960, Blaðsíða 2
H.f. Eimskipafélag íslands Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavik, föstu- daginn 3. júni 1960 og hefst kl. 1,30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag ]>ess og framkvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur- skoðaða reikninga til 31. des. 1959 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og til- lögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna i stjóm félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðenda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef tillögur koma fram). 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn^ sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 30. maí til 1. júní næstk. Menn geta fengið eyðu- blöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavik. Óskað er eftir að ný umboð og aftur- kallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn. Reykjavik, 19. janúar 1960. J S±jórnin.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.