Kirkjuritið - 01.11.1960, Síða 23
KIRKJURITIÐ
405
Kjarvál.
Kjarval varð 75 ára 15.október síðastliðinn. Það er gott til
þess að vita, hvað hann sýnist ungur og afkastar enn fádæma
miklu. Hann skapar stöðugt hvert listaverkið öðru fegurra.
Heldur ekkert að óttast, þótt hann eldist, því að hann er einn
af þeim, sem deyr ekki. Það tekur hins vegar þjóðina efalaust
aldir að gera sér ljóst, hvað hann hefur gefið henni. Hvað hann
hefur séð og opinberað af fegurð og speki.
Leitt, að hann hefur ekki málað fleiri altaristöflur, svo sterk-
ur sem trúarstrengurinn er í brjósti hans og dulvitund hans
djúpauðug. Hann flíkar því að vísu ekki oft í orðum, en mikill
er sá trúmaður og vel kristinn, sem mælir slíkt (Samanber við-
tal í Morgunbl. 16. okt.).
„Það, sem við listamennirnir eigum að gera, er aðeins þetta:
að vera Guði til ánægju og reyna að sannfæra fólk um, að það
sé einhver tilgangur með þessu.“ ... „Heldurðu að við séum
ekki umboðsmenn almættisins, kæri vinur, ójú, ekkert minna."
Og ... „Það er móðgun við alnáttúruna, þegar fólk sér eitthvað
fallegt i henni og segir: „Þetta er kjarvalskt.11 Svoleiðis fólk
ætti að fá kárínur fyrir. í staðinn fyrir að það ætti að segja eins
og þeir í Brasilíuförunum, þegar þeir sáu eitthvað fallegt:
nNú ætti bróðir minn að vera kominn og sjá þetta með mér.“
Angan þessara orða er eins og mosans, sem Kjarval hefur
hafið mest og gefið oss nýjan og fyllri skilning á.
Vér óskum þjóðinni þess, að listamaðurinn njóti enn heil-
inda og sólarsýnar um áratugi, til að auðga hana og göfga.
Gunnar Árnason.
Silfurþrœðir heitir bók, sem Bræðraiag, kristilegt félag stúdenta,
hefur gefið út. Þýddar sögur. Efnið völdu þeir prestarnir, Árelíus
Níelsson, Gunnar Árnason og Jón Auðuns.
Prófessor Regin Benter dr. theol. var hér á ferðinni í október í
boði guðfræðideildarinnar, og hélt tvo fyrirlestra. Þann fyrri um
skoðanir Lúthers á afstöðu hins almenna prestsdóms til prestsemb-
®ttisins. Þann síðari um skoðun Lúthers á sambandi ríkis og kirkju.
Lr. Prenter er nú einn af hinum kunnustu Lúthersfræðingum. —
Kirkjuritið væntir að geta birt viðtal við hann á næstunni.