Kirkjuritið - 01.11.1960, Page 35
KIRKJURITID
417
Þegar svo Kristur kom, byggði hann á þessari erfikenningu og
jók við hana. Og hann vakti nýja fræðara, sem fluttu enn
fyllri kenningu og lagði grunn hinnar nýju fræðslu. Biblían
er frásögn um gjörðir Guðs. Vér lesum hana til að fræðast um
starfsemi Guðs og hvernig mennirnir snúast við Guði. Lesendur
Siblíunnar ættu að sjálfsögðu að byrja á guðspjöllunum. Þau
eru frásagan um það, hver Kristur var og hvað hann sagði og
Sjörði. Og í Postulasögunni og af bréfunum kynnumst vér því,
hvernig kirkjan var og vann á sínum fyrstu vordögum, þegar
Kristur var henni ferskastur í minni og hún gekk beint að því
verki að bylta heiminum — umbreyta honum. Þér er bezt að
hynna þér það af eigin sjón.
Gamla testamentið er öllu erfiðara aflestrar, — það nær yfir
1000 ára skeið — og þér er hentast að hafa einhvern leiðbein-
anda við lestur þess. En sízt skortir á, að þar séu margir áhrifa-
miklir kaflar, og það sýni þér ljóslega hvernig Guðs eignarlýður
hraut Kristi brautina fyrir handleiðslu Guðs. Því ekki skaltu
halda, að Drottinn Kristur hafi komið sem af tilviljun eða eins
°& þruma úr heiðskíru lofti. Ef þú kynnir þér, hvað var á und-
an gengið, blandast þér ekki hugur um, að koma hans var einn
iiðurinn í ráðsályktun Guðs — og þá skilst þér betur, hvert vér
°g kirkjan eigum að stefna nú á dögum.
Lestu því Biblíuna kostgæfilega. Láttu þig engu skipta þá
kafla, sem þú skilur ekki; það er meira en nægilegt, sem öll-
nm er auðskilið. Ekkert er til, sem gengur manni eins til hjarta
°S er til slíkrar hugstyrkingar sem orð og gjörðir Krists. Þess
Vegna áminnir kirkjan þig um að lesa Ritninguna, ef þér er
nmhugað um að fylgja Kristi ráðnum huga. Hann talar til þín
af spjöldum Ritningarinnar — og áminnir oss um að gæta siða
v°rra og markmiða.
G. F. Fisher erkibiskup (G.Á.).
27