Kirkjuritið - 01.11.1960, Page 49
KIRKJURITIÐ
431
Annars má segja, að saga Löngumýrarskólans sé ævintýri líkust.
Af stórhug og miklum dugnaði hefur frk. Ingibjörg byggt upp skól-
ann, og hefur hann vaxið og dafnað undir stjórn hennar. Og vin-
s^ldir skólans eru alkunnar. Margar ungar stúlkur hafa hlotið þar
hienntun sína í húsmæðrafræðum, og minnast þær skólans með hlý-
hug og þökk. Og þó að ef til vill væri ekki allt fullkomið á nýtízku
mælikvarða í ýmsum aðbúnaði, einkum fyrstu árin, þá var hlýjan,
sem mætti þeim, vináttan, sem þær bundust, meira virði.
Alltaf stendur frk. Ingibjörg í stórræðum. Þegar hún hefur lokið
v>ð eina framkvæmdina, byrjar hún á annarri. Að vísu fær hún ein-
hvern styrk frá því opinbera, en að mestu leyti verður hún að standa
straum af þessu ein. Margt þarf að athuga og framkvæma.
Fyrir nokkrum árum var leitt kalt vatn í skólann. Leiðslan var
h 3ja km löng. Skiljanlega mjög dýrt fyrirtæki.
Nú á að fara að leggja heitt vatn, hitaveitu, í skólann frá Varma-
hlíð. Leiðin mun vera nær því 2 km. Og áætlaður kostnaður a. m. k.
250 þús. kr.
Allir sjá, hvílíkur feikna dugnaður og áræði það er að koma þessu
1 framkvæmd fyrir eina manneskju, þó að ríkisstyrkur sé einhver.
Nýlega hefur farið fram þurrkun á landi skólans og bíður það nú
eftir, að það sé brotið og ræktað.
Og víst er það, að frk. Ingibjörg hefur mikinn hug á að rækta
'andið. Matjurtagarðar, skógarreitir og tún. Þannig mun það verða
v°n bráðar.
Húsmæðraskólinn að Löngumýri hefur oftast verið vel sóttur, þó
aS misjafnt sé, eins og með fleiri húsmæðraskóla á landinu. Síðast-
hðinn vetur var unglingaskóli haldinn þar hluta úr vetrinum. Og
Var aukakennari ráðinn séra Árni Sigurðsson.. Var reynslan góð af
shku, en óvíst er, að framhald verði á því.
Frk. Ingibjörg hefur ætíð iagt kapp á að glæða fegurðarsmekk
únglinganna og lagt áherzlu á, að andinn er efninu æðri, og viljað
hafa kristileg áhrif á nemendur sína. Það er ekki sízt þess vegna, að
hún hefur lánað skóla sinn undanfarin sumur til sumarbúða fyrir
hirkjuna.
Og þess vegna var líka æskulýðsmót haldið þar laugardag og
súnnudag 6. og 7. ágúst s. 1. Um 170 unglingar víðsvegar að tóku
Þátt í mótinu og átta prestar voru mættir. Undirbúning höfðu annazt
súmarbúðastjórinn séra Lárus Halldórsson og stjórn Æskulýðssam-
hands Kirkjunnar í Hólastifti (Æ.S.K.).
Stór tjaldborg reis á túninu sunnan við skólann síðari hluta laug-
undags, því að flestir urðu að gista í tjöldum.
Mótið hófst með kvöldvöku í kapellu skólans. Séra Pétur Sigur-
8eirsson setti mótið og stjórnaði því af sinni kunnu ljúfmennsku og
áugnaði. Þá las Valdimar Snævarr fyrrv. skólastjóri upp frumort
;i°ð og flutti síðan hvatningarorð til æskunnar. Var hann brennandi
1 andanum og óskaði, að aliir mættu eignast Krist að leiðtoga lífs
S1ns. Því næst komu fram þrír ungir menn frá Akureyri, þeir Ing-