Kirkjuritið - 01.01.1961, Blaðsíða 43
Séra Árelíus Níelsson fimmtugur.
(7. september 1960).
Fimmtugi kunni klerkur,
kröftugur, sannur, merkur,
á Boðn ég heiti og Braga,
boðlegt svo megi laga.
Ljóðið, sem glatt þig geti,
ef grimmu fordómahreti
eftir þú átt að mæta,
ósk mín er þig að kæta.
Prestur er vandi að vera,
voldug í höndum bera
ljós þau, er vegi lýsa,
leiðina réttu vísa
til sannleikans sigurhæða,
sárin mýkja og græða,
hugga hrellda og þjáða,
hjálpa veikum til dáða.
Sjá, þú átt vit og vilja,
vizkunnar ljós, sem ylja.
Skilningsins mikli máttur,
manndómsins göfgi þáttur,
sterk er þú ræðir rökin,
réttlætis máttartökin,
eldlegur andans þróttur
er í guðstrúna sóttur.
Veitist þér gæfa og gengi,
gróska, sem endist lengi,
umbótaviljinn verki,
verði þér sigurmerki.
Er lýðinn frá villu leiði,
lífsflækjur margar greiði.
Guðdómsins náð þér gefi
gæfu í hverju skrefi.
Lilja Björnsdóttir