Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1961, Síða 28

Kirkjuritið - 01.07.1961, Síða 28
KIRKJURITIÐ 314 illa mannlegra samskipta vekja lijá oss ]>rá eftir friði og kyrrð. Og tómleiki efnislegra þæginda vekur oss æðri þrá. Hér þarf að svala nýjum þörfum, eða öllu lieldur göml- úin þörfum, sem ofurlítið liafa gleymzt. Og liér vil ég benda á tvenns konar atlivarf, sem vér eiguin völ á. Aniiars vegar er hið mikla musteri náttúrunnar. Gangið út á stjörnubjörtu kvöbli og liorfið á dýrð liiminsins. Horfið á þögul og dulúðug fjöllin. Horfið lengi og blustið, og þið mun- ið öðlazt reynslu, sem þið gleymið ekki ævilangt. Slíkt er eí til vill ekki bægt nema á einstaka náðarstundum. En það er þess virði að reyna það. Hitt atbvarfið er kirkjan. Kirkja á að vera heilagur griða- staður í ókvrrð daganna. Þangað eigum vér að sækja sálarró, sem ekki er aðeins boll þreyttum taugum og gæti jafnvel bjargað lífi sumra, lieldur á liún einnig að lijálpa oss til að safna tvístruðum liuga og finua sjálfa oss. Hér eigum vér, í auðmýkt, að mæta frammi fyrir dularafli, sem vér öll lútum, livaða nafn sem vér viljum gefa því. Hér eigum vér að sam- eina liugina í söng og bæn. Engan söng þekki ég, sem á jafn friðandi mátt og sálmasöngur. Dragandi tónarnir, sem minna á nið aldanna, seiða og sefa hugann og bera liann til ókunnra stranda. Og samstilling buganna í þögn og bæn á að lijálpa oss til að gleyma sjálfum oss, svo að vér getum sameinazt liinni miklu uppsprettu allra liluta. Þá fvrst komumst vér í sátt við sjálfa oss og tilveruna og getum orðið snortin af þeim anda friðar og kærleika, sem ýmsir göfugustu andans menn allra tíma liafa talið, að væri innsti kjarni allrar veru. Þórarinn Björnsson Lít á þann, sem vekur alhygli þína á göllum þínum, söniu augum, ug þann, sem bendir þér á mikla fjársjóði. — Búdda. Maðurinn er það', sem hann er í Guðs augum, og hvorki meira né minna. Frans jrá Assisi.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.