Kirkjuritið - 01.10.1961, Side 17
KIRKJURITIÐ
351
Undirbúningur að starfrækslu þess var liafinn 1954. Yoru þá
keypt þarna tvö bús af sandgræðslu ríkisins. Hófst síðan
rekstur í smáum siíl, enda á tilraunastigi. Nú er búið að verja
4 millj. og 200 þúsundum króna til byggingarframkvæmda,
enda íbúðir vistlegar og góð starfsskilyrði. Rúm er fyrir 40
vistmenn. 300 liafa innritast á undanförnum árum. Dvalartími
3—6 mánuðir. Dómsmálaráðberra lýsti þeirri von sinni við
„endurvígsluna“, að senn yrði unnt að endurskoða löggjöfina
um drykkjusjúka menn í ljósi nýrrar þekkingar, sem fengist
befði á síðustu árum.
„Guðmundur Jóbannsson forstjóri Bláa bandsins þakkaði
fyrir liönd sjúklinga, er dvalizt liöfðu á þessu liæli, en bann
hefur ásamt Vilbjálmi Heiðdal liaft stöðugt samstarf við
stjórnendur bælisins, flutt þangað sjúka menn og liðsinnt
þeim á ýmsan hátt. Hann kvað á seinni árum skilning ráða-
manna vera mjög lofsverðan. Hann kvað margar hendur liafa
komið til bjálpar þeim mönnum, er þjáðst befðu af sjúkdómi
ofdrykkjunnar. Kvað bann ólíku saman að jafna nú, er þessir
menn væru teknir á bæli og í læknishendur í stað þess að vera
settir í kistuvagninn og lokaðir inni í fangahúsum eins og áður
var“.
Viðgangur þessara og annarra líknar og mannúðarmála er
mjög gleðilegur og á alls staðar að sjálfsögðu að mæta vel-
vilja og stuðningi presta og annarra kirkjunnar manna.
Táknmynd — efia hvafí?
Nokkur annar andi birtist óneitanlega í Jiessari klausu, sem
tekin er úr Vísi 5. 9. þ. á.:
„Engin hækkun á áfengi.
Ótti mikill liefur gripið um sig meðal landsmanna vegna
þess að lausafregnir Iiafa bermt að áfengi mundi bækka á næst-
unni. Hefur Jiað ýtt undir söguna, að tóbaksvörur bækkuðu um
4% að meðaltali rétt fyrir síðustu helgi, og béldu margir að
nú mundi áfengið koma á eftir.
Vísir átti í morgun stutt viðtal við forráðamenn Á.T.R., og
fékk |>ær ánægjulegu fregnir, að ]>eir befðu ekkert lieyrt um
slíka hækkun, og má J)ví búast við óbreyttu verði á næstunni.