Kirkjuritið - 01.10.1961, Page 21
Þankabrot að aflokinni prestastefnu
Ritstjóri Kirkjuritsins kvartar um það í „Pistlum“ sínum,
að klerkar séu í seiniii tíð orðnir helzt til hljóðir menn op
hlédrægir, er láti lítt til sín taka á opinberum vettvangi þau
kirkjulegu dagskrármál, er ofarlega séu á haugi og afstöðu
þurfi til að taka á hverjum tíma.
Hér liefur ritstjórinn vissulega nokkuð til síns máls, —
þannig mundi Kirkjuritið t. d. tvímælalaust verða áhrifameira
málgagn, ef það yrði ahnennari vettvangur kirkjunnar maiina,
lærðra og leikra, en nú er
En Kirkjuritið getur ekki vænzt þess, að fá mikið af aðsend-
lun greinum, ef það setur þær á svo smáu letri, að naumast
er læsilegt, nema með stækkunargleri, en þeirri meðferð sætti
ég t. d. er ég fvrir fáum árum hafði sent ritinu nokkrar smá-
greinar, — og tók ég það sem vísbendingu um það, að ekki
væri óskað eftir frekari skrifum frá mér.
Ég tel þó, að ég hafi nú þegar tekið nægilegt tillit til þess-
arar vísbendingar og festi hér á blað fáein sundurlaus hrot
úr hugsunum mínum að aflokinni síðustu prestastefnu:
Veitirifí prestsembœtta
Eitt þeirra mála, sem á synodunni voru rædd, var veiting
prestakalla og liugsanlegar breytingar á lögum þar að lútandi.
^íðasta Kirkjuþing fjallaði einnig um þetta mál og hefur sent
tillögur sínar sóknarnefndum og prestum og er ætlunin, að þær
verði ræddar almennt á héraðsfundum á hausti komanda af
klerkum og leikmönnum.
Þar er þó um tiltölulega þrögan hring að ræða, og mér
fvndist rnjög æskilegt, að um það yrði fjallað og á það liorft