Kirkjuritið - 01.10.1961, Síða 43
KIRKJURITIÐ
377
orinsdóttir og Herdís Jakobsdóttir. Þá sýndi sr. Þórir Stephenssen þrjár
kvikmyndir, og skýrði þær, en sr. Arni Sigurðsson þakkaði þessa hugnæmu
kvöldvöku. Síðan var haldið til kirkju. Flutti þar hugleiðingu og l>æn sr.
Gunnar Gíslason í Glaumhæ.
Drottins dag 11. júní risu menn ára úr rekkju, var gengið til kirkju kl.
9,30. Flutti þar morgunbænir sr. Gísli Kollieins að Melstað. en sr. Þórir
Stephenssen flutti erindi um kirkjuna og gripi liennar, en Eyþór Stefánsson
sýndi og útskýrði fyrir mönnum hið nýja pípuorgel kirkjunnar. Var nú
gefinn frjáls tími, fór þá fram kappleikur í knattspyrnu meðal ungmenna.
En kl. eitt var lagt af stað heirn til Hóla, en þar skyldi syngja messu. Er
komið var til Hóla var þar mættur sr. Sigurður Stefánsson vígslubiskup á
Möðruvöllum. Kl. 2 hófst messugjörð í Hóladómkirkju. Altarisþjónustu
Iiöfðu á hendi sr. Björn Björnsson prófastur á Hólum og sr. Sigurður Stef-
ánsson vígslubiskup, en sr. Pétur Þ. Ingjaldsson á Höskuldsstöðum flutti
prédikun. Organisti var Evþór Stefánsson tónskáld, er sá um allan söng á
mótinu með mikilli prýði.
Að lokinni inessugjörð ávarpaði sr. Árni Sigurðsson víguslubiskup Sigurð
Slefánsson og bauð liann velkominn á mótið, einnig árnaði hann liiiium
Mynd þessi er af skírnarfonti,
sem Wilhelm Bechmann hefur ný-
lega skorið út. Er fontur þessi
gefinn Villingaholtskirkju af frú
Hildi Björnsdóttur og sonum
hennar, Bjarna lækni Guðmunds-
syni og Guðmundi forstjóra Guð-
mundssyni — til minningar um
Guðniund liónda Bjarnason —
föður þ eirra bræðra. í Villinga-
holti var Péturskirkja til forna.