Kirkjuritið - 01.01.1962, Page 49

Kirkjuritið - 01.01.1962, Page 49
KIRKJURITIÐ 43 innar og ætlast sumir boðendur til „óskeikullar trúar“ á þeim. Þess konar skoðanavissa liefur reynzt kristindóminum skeinu- hættari en nokkuð annað. Hugleiðið þetta með sjálfum ykk- ur. Fullt trúnaðartraust til hinnar andlegu staðreyndar leysir skoðanimar i'ir læðingi, gefur þeim frelsi. Vantraust á grund- vellinum veldur því að menn ríghalda sér í liúsin eins og fólkið, sem hnappast saman á þökum umflotinna húsa, sem stundum má sjá í fréttamyndum blaðanna. Greinin segir frá austantjalds-blekkingu af því tagi, sem ópíum múgsefjunar- innar getur við haldið um stund, en endar með skelfingu fyrr en varir, ef enginn Móses er til að leiða fólkið út úr húsi ánauðarinnar. Þeir, sem aldrei hafa látið sefjast, og eins hinir, sem vaknaðir eru af dásvefninum, vita, að ekkert nema liin andlega einstaklingsliyggja Ivrists getur unnið á þeirri andaveru vonzkunnar í himingeimnum, sem þarna er að verki. Gufispjall af grösum og trjám nefnist ræða eftir séra Benja- mín Kristjánsson, sem næst fer á eftir í ritinu, bráðsnjöll og andleg. Þar bregður hann hetri egginni á Benjamínsnauti, sverðinu sveifluglaða. Þetta er Ijómandi boðskapur. Gefum gaum að liljum vallarins hversu þær vaxa. Bókafregnir, innlendar fréttir og erlendar reka lestina og lýkur þar lesmáli heftisins, en liugsun mín prjónaði langau sokk að lestrinum loknum. Svo lítur út fyrir, að sánkti Nikulás hafi komið og troðið í hann þessu, sem hér gengur út á þrykk. Haf þökk fyrir þitt mikla og óeigingjarna starf í þágu les- endanna, ritstjóri góður. Einnig sé öðrum þökk, sem efni lögðu til. Mættum vér fá meira að lieyra.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.