Kirkjuritið - 01.05.1962, Blaðsíða 3
Hvítasimnuboðskapur
jorseta AlkirkjuráSsins 1962
Samjélag heilags anda
I kirkjum um allan heim verða þessi orð flutt á hvítasunn-
unni sem kveðja eða hlessun: „Náðin Drottins Jesú Krists, kær-
leiki Guðs og samfélag heilags anda, sé með oss öllum“. ( 2. Kor.
13, 14). Þessi árnan Páls er svo gagnkunnug öllum kristnum
mönnum, að liætta er á að merking hennar hafi sljófgast og vér
hlustum aðeins á hana sem viðurkvæmileg niðurlagsorð. En
oss langar til að þér á þessari hvítasunnu vilduð gefa yður tíma
til að kafa ögn dýpra í auðlegðardjúp þessa orðtækis: „sam-
félag heilags anda“ með núverandi heimsástand fyrir augum.
Eftirfarandi yfirlýsing var gefin í boðskap þriðja Alkirkju-
þingsins, sem haldið var í Nýju-Dehli: „Vér þökkum Guði að
vér fögnum hér sem fyrr reynslu samfélagsins“. Og ennfrem-
ur: „Sakir þessa samfélags er oss auðið að ræða og starfa frjáls-
lega innbyrðis, þar sem vér erum allir liluttakendur þess ásamt
Kristi“. Og nú misseri síðar er oss enn skylt að þakka staðreynd
þessa samfélags. Það er ekkert lítilsvert að oss skuli hafa tek-
izt að uppgötva þvílíka samstillingu og raun ber vitni varð-
andi einingu, boðskap og þjónustu kirkjunnar í jafn marg-
klofnum heimi og vér lifum í. Þannig höfum vér séð það með
eigin augum á þessum vettvangi, að heilagur andi er þess eins
niegnugur að skapa samfélag manna af mismunandi þjóðum
og ólíkum tungum nú á dögum, eins og á liinni fyrstu hvíta-
sunnu í Jerúsalem forðum daga. „Að tilhlutun Drottins er
þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum“.
Þetta kemur þó allt að engu haldi nema samfélag heilags
unda endurspeglist í óteljandi sóknum og söfnuðum og á þeim
10