Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1962, Síða 10

Kirkjuritið - 01.05.1962, Síða 10
152 KIRKJURITIS faert sé. En þetta er alls ekki nóg. Presturinn á að vera sálna- hirðir, sem þekkir sóknarbörn sín og vakir yfir velferð þeirra, er þeim lmggari í raunum, leiðbeinandi í andlegum vanda, vitjar sjúkra manna og einmana gamalmenna, en er auk þess fulltrúi og þjónn þeirrar stofnunar, sem eðli sínu sam- kvæmt lilýtur að láta sig miklu skipta þau siðferðilegu og menningarlegu vandamál, sem uppi eru með þjóðinni hverju sinni. Að öðrum kosti verður hann eins konar ,,automat“ eða sjálfsali, sem stungið er í nokkrum krónum og snúið er á band- fangi, þegar menn óska eftir sérstökum bátíðablæ á vissum tímamótum ævinnar og við síðustu ferð manns liérna megin grafar. Margir líta á ræðuflutninginn sem þungamiðjuna í starfi prestsins og það var nokkuð eðlilegt, meðan presturinn var eini skólagengni maðurinn í söfnuðinum, en það á ekki leng- ur við. Þegar ég fer í kirkju, geri ég það lil þess að komast í samband við það andlega segulsvið tilbeiðslu og lotningar, sem guðsþjónustan á að vera, en allt, sem eykur hátíðleik bennar og fjölbreytni, stuðlar að því að styrkja það, Vil ég í því sambandi benda á þann feng, sem kirkjunni getur orðið í liinni nýju messusöngbók síra Sigurðar Pálssonar. Ég fer ekki fyrst og frcmst til að hlusta á ræðu prestsins. Ég býst að öllum jafnaði ekki við að lieyran annað í benni en það, sem mér var áður kunnugt og ég gæti sjálfur sennilega komið eins vel orðum að og hann. Þó liefur presturinn á einu sviði sérmenntuu fram yfir mig og flesta aðra álieyrendur sína. Hann hefur báskólapróf í trúfræði, þ. e. a. s. niðurstöðum mestu hugsuða kirkjunnar um bin eilífu viðfangsefni varð- andi Guð og tilgang lífsins. Enda þótt þær niðurstöður séu reistar á grundvelli þeirrar opinberunar, sem kirkjan gerir kröfu til að eiga og rétt til að túlka, þá hljóta þær að mótast að nokkru leyti af lireyttri þekkingu manna á hverjum tíma. Presturinn þarf því að vera í snertingu við strauma og and- leg viðborf samtíðar sinnar, beimspeki hennar og þjóðfélags- þarfir, jafnvel að fylgjast nokkuð með í náttúruvísindum benn- ar. Sá undarlegi hugsunarháttur virðist mjög ríkjandi liér á landi, að presturinn eigi helzt ekki að ræða þá grein, sem liann á þó að liafa sérmenntun í, sem sé trúfræðina, lieldur

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.