Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1962, Side 30

Kirkjuritið - 01.05.1962, Side 30
KIRKJURITIÐ 172 skrifað fjölda margar greinar um ýmis efni og flutt fjöltla er- inda og fyrirlestra og ýmislegt er til í handritum frá lians liendi, enn óprentað. Hann kvæntist 28. maí 1896 Kristjönu Ágústu Eymundsdóttur, bónda á Skjaldarþingsstöðum, Ey- mundssonar. Börn þeirra eru: Sólveig Soffía, hjúkrunarkona, gift Haraldi Eiríkssyni, rafvirkja, Rvík., Anna, gift Óskari Kárasyni, múrarameistara, Vestmannaeyjnm, Gísli Friðrik, íþróttakennari, Vestmannaeyjum, kvæntur Magneu Sjöberg, Ásdís Guðbjörg, gift Þorsteini Einarssyni, íþróttafulltrúa, Rvík. Þrjú eru dáin, Guðný, Gísb og Ásdís. Heimili séra Jes var sólstafað ástúð og kærleika og góðum og göfugum dyggðum. Hann var ljúfur í lund og skemmtinn í öllum viðræðum, alltaf gamansamur og af gáfum gueistaði bann. Góðleikur og eldmóður voru einkenni lians. Hann var meðlimur Góðtemplarareglunnar í 60 ár og lieiðursmeðlimur rnörg ár, íklæddur liertýgjum reglunnar, trúnni, voninni og kærleikanum í ótrauðri baráttu og sókn með snilli meðan kraftar leyfðu. Hvarvetna lagði liann góðu málefni lið sitt með ötulleika og beppni og prúðmennsku, en þó algjörri sérfylgni. Hann kom fram í algjöru látleysi, en stefndi þó liátt. Hans mikla og staðgóða menntun og skilningur á mannlífinu og samúð veitti lionum brautargengi. Hann var alltaf fræðarinn og alltaf að berjast fyrir mannúðarmálum. Virtist alltaf upp- lagður til þess að segja eittlivað skemmtandi og menntandi. Hann var afburða latínumaður, bekkjarbróðir heimspek- ingsins mikla Helga Péturssonar. Og er nú allur bekkjarbræðra- hópurinn til foldar lmiginn. „Fylgir ætíð sólarfalli niorgun næsti, fagur á liimni. Ljósrík Guðs er náðin. Von eilífs lífs og vissa dags, seni hverfur, verður að eining þeiin, er Kristi lifa. Dauðinn er aðcins augnahragðsins leiftur, innför í dýrð og sælu himinranna“. Ó, Guð veit niér náð til þess að lifa svo þessu lífi, að inér sé fært að lifa Krisli síðar, og þurfi ekki að hlygðast mín, þegar þar að kemur að ég lít uui öxl á þetta jarðlíf. — Gústaj Adolf.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.