Kirkjuritið - 01.05.1962, Qupperneq 30
KIRKJURITIÐ
172
skrifað fjölda margar greinar um ýmis efni og flutt fjöltla er-
inda og fyrirlestra og ýmislegt er til í handritum frá lians
liendi, enn óprentað. Hann kvæntist 28. maí 1896 Kristjönu
Ágústu Eymundsdóttur, bónda á Skjaldarþingsstöðum, Ey-
mundssonar. Börn þeirra eru: Sólveig Soffía, hjúkrunarkona,
gift Haraldi Eiríkssyni, rafvirkja, Rvík., Anna, gift Óskari
Kárasyni, múrarameistara, Vestmannaeyjnm, Gísli Friðrik,
íþróttakennari, Vestmannaeyjum, kvæntur Magneu Sjöberg,
Ásdís Guðbjörg, gift Þorsteini Einarssyni, íþróttafulltrúa,
Rvík. Þrjú eru dáin, Guðný, Gísb og Ásdís.
Heimili séra Jes var sólstafað ástúð og kærleika og góðum
og göfugum dyggðum. Hann var ljúfur í lund og skemmtinn í
öllum viðræðum, alltaf gamansamur og af gáfum gueistaði
bann. Góðleikur og eldmóður voru einkenni lians. Hann var
meðlimur Góðtemplarareglunnar í 60 ár og lieiðursmeðlimur
rnörg ár, íklæddur liertýgjum reglunnar, trúnni, voninni og
kærleikanum í ótrauðri baráttu og sókn með snilli meðan
kraftar leyfðu. Hvarvetna lagði liann góðu málefni lið sitt með
ötulleika og beppni og prúðmennsku, en þó algjörri sérfylgni.
Hann kom fram í algjöru látleysi, en stefndi þó liátt. Hans
mikla og staðgóða menntun og skilningur á mannlífinu og
samúð veitti lionum brautargengi. Hann var alltaf fræðarinn
og alltaf að berjast fyrir mannúðarmálum. Virtist alltaf upp-
lagður til þess að segja eittlivað skemmtandi og menntandi.
Hann var afburða latínumaður, bekkjarbróðir heimspek-
ingsins mikla Helga Péturssonar. Og er nú allur bekkjarbræðra-
hópurinn til foldar lmiginn.
„Fylgir ætíð sólarfalli niorgun næsti,
fagur á liimni. Ljósrík Guðs er náðin.
Von eilífs lífs og vissa dags, seni hverfur,
verður að eining þeiin, er Kristi lifa.
Dauðinn er aðcins augnahragðsins leiftur,
innför í dýrð og sælu himinranna“.
Ó, Guð veit niér náð til þess að lifa svo þessu lífi, að inér sé fært að
lifa Krisli síðar, og þurfi ekki að hlygðast mín, þegar þar að kemur að
ég lít uui öxl á þetta jarðlíf. — Gústaj Adolf.