Kirkjuritið - 01.05.1963, Page 8

Kirkjuritið - 01.05.1963, Page 8
KIRKJUliITlf) 198 og hvort hann nuetti sýna mér kirkjuna sína, sem hann virtist hreykinn af. Hver lilntur átti sína sögu. Að lokum sáum við eldhús og kaffistofu, sem notaö var á sunnudögum og sérstök- uni kvölilum og var því komið fyrir í hliðarálmu. Þegar við komum aftur inn í kirkjuna sjálfa var kominn fjöldi fólks, og jiegar ég aðgætti betur sá ég, að jietta voru allt negrar, brosmilt fólk og alúðlegt. Og nú mátti ég ekki setjast á aftasta bekk og liorfa á, ég var látin setjast í miðja kirkju og beðin að syngja og hiðja með. Presturinn flutti stutta bæn, síðan voru sungnir sálmar og fluttar bænir til skiptis — bænir uni frið og bræðralag allra jjjóða og kynþátta. Aldrei hef ég séð heðið af meiri lotningu eða innileik og aldrei heyrt sungið af meiri gleði. Að lokuni stóð organleikarinn upp, sagðist liafa eignast nýjan vin í kvöld, sem nýkominn væri frá íslandi, kynnti mig fyrir kirkjugestum og spurði livort ég vildi ekki segja nokkur orð. Þetta kom mér algjörlega á óvart og ég fann ekkert til að segja — aðeins nokkur þakkarorð fyrir fagra kvöldstund. Þegar ég kvaildi gamla, gráhærða negrann, sagði hann mér, að liann væri kennari, liefði lesið töluvert um landið mitt, en ég væri fyrsti lslendingurinn, sem liann hefði liitt, og svo sagði liann að lokum: „Ég skal biðja fyrir litla landinti þínu“. Á eftir var ég óánægð með franunistöðu mína, þótti hún léleg og sá eftir að liafa ekki reynt að segja eitthvað. Ég hefði að minnsta kosti átt að geta farið með fallegt vers a íslenzku. En það er svo margur sniðugur eflir á og þannig fór mér. Þetta tninnir mig á annað atvik, sem einnig gerðist í Banda- ríkjununt, en í annarri horg og fyrir um 12 árutn síðan. Þa var ég ásamt fleirunt í ntiðdegisverðarboði með 5 kaþólskutn prestum og kennurum kaþólskra prestaefna. Þetta var ekkt í fyrsta sinn, sem ég mataðist með Jjessum hóp og vissi jiví, að prestarnir fluttu borðbæn lil skiptis. Þeirra siður var að gera krossmark yfir borðið, signa síðan sjálfa sig áður en sezt var, og síðan flutti einhver jjeirra bænina. Þegar nú allir voru sextir og beðið var eftir borðbæninni, sagði einn prestanna, sem var Hollendingur: „Nú langar mig að biðja Islendinginn okkar að fara með bæn á sínu máli“. Allra augu störðu á mig, en ég sat sem lömuð — ég kunni enga borðbæn á íslenzku. Éyrsta hugS' un mín var: Eg verð að fara með eitthvað, ég get ekki sagb

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.