Kirkjuritið - 01.05.1963, Blaðsíða 38

Kirkjuritið - 01.05.1963, Blaðsíða 38
228 KIRKJUIUTH) Meðhjálpari leiddi menn í kór eins og það var kallað og setti þá í viss sæti, sem þeir áttu að vera í, þegar þeir voru komnir á það þroska- eða menningarstig, sem samboðið var þeim iiópi manna, sem þar var. Sumir liafa eins og alizt þar npp. Einnig leiddi liann þangað velmetna aðkomunienn til að sýna þeim með því gestslega virðingu. Þó að kirkjan nýja á Stað liti nokkuð öðruvísi út en Iiin og væri á öðrum stað, þá munu flestir siðir og venjur liafa flutzt þangað úr liinni, og fólkið mun hafa setzt í sem líkast- an stað og það sat í hinni. Og ])ó að ekki sé nú orðið auðið að lilgreina áreiðanlega sætið, sem hver maður sat í, mun að miklu vera auðið að tilnefna þá, sem sátu við austur- eða vest- urhlið í kórnum á ýmsum tímum. Atliuguð hafa verið sætin í kórnurn og virðist sem hann sé fullskipaður með 26 mönnum, 14 við austurhlið, en 12 við vesturhlið, og skal hér reynt að tilgreina nokkuð af mönnurn þeim, er sátu í mörgum þeirra. Við austurhlið: 1. Sætið við altarið. Þar sat Þorbjörn Gissurarson. Hefur líklega setið þar í torfkirkjunni, og sennilegt, að þar hafi faðir hans setið, Gissur Einarsson, bóndi í Selárdal. Hann dó 1854, en Þorbjörn 1905. 2. Jón Þorbjarnarson mun bafa færzt að altarinu, þegar faðir lians dó. 8. I þriðja sæti frá altari sat Þórarinn Þorbjarnarson, og hafa þeir bræður að líkindum setið þar hörn í hinni kirkj- unni. 4. I fjórða sæti frá altari er ekki gott að tilgreina, en á ár- unum 1894—98 sátu þar og í næsta sæti og lausabekkn- um þrír synir Þorvaldar Gissurssonar (eldri). 5. Þar sal um langan tíma Friðbert Guðmundsson bóndi í Fremri-Vatnadal, síðar í Hraunakoli. Hann dó 1899. 6. Jóhannes Hannesson, hreppstjóri, Botni. 7. Friðrik Gíslason, Kvíanesi. Dó 1899. 8. Þar sat Guðmundur Ásgrímsson bóndi á Gelti. 9. Þar sat Guðmundur Jónsson bóndi í Fremri-Vatnadal. Þessi röð mun hafa haldizt af mönnum. En ef einhvern vantaði, þá færðust þeir uin sæti inn, eða að unglingur færðist upp í bekkinn. Annars sátu unglingar í lausa bekknum, sent

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.