Kirkjuritið - 01.06.1963, Side 5

Kirkjuritið - 01.06.1963, Side 5
Albert Schweitzer: Lotningin fyrir lífinu Tvennt er það einkum, sem varpar skugga sínum á líf mitt. Annað er það, að mér virðist þessi heimur vera full- ur óskil janlegra leyndardóma og mikillar þjáningar. Hitt er það, að mér finnst ég lifa á tímum andlegrar hrörnunar mannfólksins. Ég hef vanið mig á það og jafnan verið til þess fús, að brjóta heilann um þetta livorutveggja, og það kefur leitt til þess, að ég hef öðlazt jákvæða afstöðu til sið- rænnar breytni og lotningu fyrir lífinu. Og þetta hefur orð- ið mér fótfesta í lífi mínu og öruggur leiðarvísir. Því er það, að starf mitt og líf í þessum heimi beinist að því að gera mennina djúphyggnari og siðferðilega sterkari Uieð því að fá þá til að liugsa. Ég er í fullkominni andstöðu við yfirstandandi tíma vegna þess, að þeir lítilsvirða og vanmeta frjálsa hugsun. Þessa af- stöðu nútímans má að nokkru leyti skýra með þeirri stað- feynd, að hugsunin hefur ekki enn náð því takmarki, sent hún hlýt ur að setja sjálfri sér. Hvað eftir annað hefur hugs- unin sannfært sjálfa sig um það, að hún liafi klárlega komið fram með þá heimsskoðun, sem bæði hafi verið í samræmi við þekkinguna og ank þess fullnægt siðgæðinu. En jafnharð- ati hefur tíminn leitt í ljós, að svo var ekki. Það var því ekki ófyrirsynju, að efasemdir vöknuðu um það, hvort liugsunin mundi nokkru sinni reynast fær um að svara spumingunum um tilveruna og samband okkar við hana a þá lund, að fundinn væri hinn sanni tilgangur og innihald lífs okkar. Og nú á dögum bætist við vanmat hugsunarinnar beinlínis vantraust á henni. Hin skipulögðu samtök á sviði stjórnmála, þjóðfélagsmála og trúmála á þessum tímum, starfa að því að

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.