Kirkjuritið - 01.06.1963, Qupperneq 33

Kirkjuritið - 01.06.1963, Qupperneq 33
Gunnar Árnason: Pistlar Syrg&ur kirkjuhöfSingi Jóhannes 23. sat skemur að stóli en flestir fyrirrennarar lians í langan aldur. Færri vonir voru og bundnar við stjórn lians en þeirra í upphafi. Margir töldu að sæzt liefði verið a að kjósa hann, sakir þess að ekki liefði náðst sanikomulag um mikilhæfari menn að svo stöddu. Nú að tæpum fimm árum liðnum er hann harmaður um víð'a veröld. Hann reyndist einn þeirra útvöldu, sem kom °g sá og sigraði. Með mannkærleika og lítillæti ávann hann Ser einstæða ástsæld. Og hann var svo mikilhæfur brautryðj- audi, að liann olli tímamótum innan kaþólsku kirkjunnar °g raunar kristninnar allrar. Hér verður þetta aðeins undirstrikað örlítið frekar. Þessi bóndasonur var þannig vaxinn að hann vann sér alls staðar hylli. Hann var fremur lágvaxinn en holdugur, góðniannlegur og hýr. Laðaði strax alla að sér. Mannskiln- lr,gur og mannúð mótaði orð hans og atliafnir. Hann kom hvergi fram sem dramblátur höfðingi, livað þá drottnari, |leldur einlægur vinur. öllum var ljóst að hann var krist- lnn maður. Honum varð það fyrst fyrir í páfadómnum að stíga niður 11 r hásætinu, skilja hátignina eftir í páfahöllinni og ganga ut á rneðal fólksins. Það er sagt að liann liafi farið um 140 Slnnum í sjúkravitjanir, á munaðarleysingjahæli, í fangelsi °S hinar og þessar kirkjur. Þess liáttar þekktist ekki í manna ^nnnurn um eftirmann Péturs Postula, sem þó var upp- 'aflega sjómaður. Jóhannes páfi var þess vel minnugur. Hann ailð gestum að borði sínu og meinaði lögreglunni að hindra

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.