Kirkjuritið - 01.12.1963, Blaðsíða 4
Til íhugunar
Séra Óskar J. Þorláksson:
Jólahugsanir
IUPPHAFI var orðið, og orðið var hjá Guði og orðið var Guð.
Það var í upphafi hjá Guði.
Allir hlutir eru gjörðir fyrir það, og án þess var ekkert til, sem
til er orðið. í því var líf og lífið var ljós mannanna, og ljósið skín
í myrkrinu, og myrkrið hefur ekki tekið á móti því. .. Og orðið
varð hold-----og hann bjó með oss fullur náðar og sannleika, og
vér sáum dýrð hans, dýrð sem eingetins sonar frá föður.
Joh. 1.1—4.14.
★
Og í þeirri byggð voru fjárhirðar úti í haga og gœttu um nótt-
ina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð
Drottins ljómaði í kringum þá, og urðu þeir mjög hrœddir. Og
engillinn sagði við þá: verið óhræddir, þvi sjá, ég boða yður mik-
inn fögnuð, sem veitast mun öllum Iýðnum, því að yður er i dag
Frelsari fæddur, sem er Drottinn Kristur í borg Davíðs.
(Luk. 2.8-11).
Þökk sé Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf.
(2. Kor.: 9,15).
í þessum orðum felast nokkrar af hinum sígildu jólahugsunum
vorum. Vér horfum á barnið í jötunni. Vér hugsum um hann, sem
kom úr dýrð himnanna, og gerðist fátækur vor vegna, svo að vér
skyldum auðgast af fátækt hans. Hversu mjög væri ekki heimur-
inn fátækari í andlegum skilningi, ef að Jesús Kristur hefði ekki
lifað á þessari jörð.
Þú mætir honum á þessum jólum. Þú heyrir svo margt um
hann. Fagnaðu honum, sem Frelsara þínum! Kjós hann að leið-
toga, byrjaðu nýtt líf með honum!
Kærleikans ímyndin fegursta, Frelsarinn bliður,
faðminn Guðs miskunnar enn sem fyrr hjörtunum biður,
hvíld finnur hér, hver sá er þjakaður er,
huggun sá, hrelling er líður. (J. P.)
Blessa oss jólahátíðina og lát frið þinn fylla hjörtu vor. Lát
jólahugsanir vorar snúast um hann, sem kom til þess að frelsa
oss synduga menn.
Gef að kærleikur þinn megi í sannleika helga þessa hátíð, og
alla ókomna daga lífs vors.
Þér sé lof og dýrð fyrir þína óumræðilegu gjöf.