Kirkjuritið - 01.12.1963, Blaðsíða 6
húsameistara
ríkisins
Höröur Bjarnason, húsarneistari ríkisins, læröi húsagerðar-
list í Dresden. Hann var um 10 ára skeiö skipulagsstj. ríkisins,
en skipaSur í núverandi stöSu sína 1954. Gert hefur hann upp-
drætti aS fjölmörgum byggingum, stórum og smáum. Hefur
átt sæti í fjölda nefnda, var formaSur byggingarnefndar ÞjóS■
leikhússins 1945—’50 og form. nýbyggingarnefndar HöfSa-
kaupstaSar 1946—’52. Framkvæmdastjóri Þingvallanefndar er
hann siSan 1944, og formaSur skipulagsnefndar ríkisins frá
1954. —
Um frœSi sín hefur hann ritaö margt í blöS og tímarit.
HörSur Bjarnason hefur mikiS komiS viS kirkjubyggingar
á síSustu árum sem þjóSkunnugt er, og glöggt kemur fram hér
á eftir. Hann er hugheill í garS kirkjunnar og hefur djúptæk-
an skilning á sérstæSu hlutverki og gildi kirkjuhúsanna. —
Mikla þekkingu liefur hanti til brunns aS bera á kirkjulegri
list aS fornu og nýju, opinn hug fyrir nýbreytni, en jafnframt
einlœga tilfinningu fyrir sígildum verSmœtum.
Þótt embætti hans sé mjög umsvifamikiS og varSi fjölda
manns miklu, er ekki ofmœlt aS liúsameistari ríkisins er flest-
um mönnum vinsœlli.
Hér á eftir fara svör hans viS nokkrum spurningum, sem
ritstjóri Kirkjuritsins lagSi fyrir hann.
„Varst þú strax á mpnntaskólaárum þínum ákveSinn í aS
nema byggingarlist?“
Já, það má segja að hugur minn liafi staðið til þess náms allt
frá efri bekkjum í menntaskóla, en fyrst og fremst varð ég fyrir
miklum og örvandi áhrifum í þessuni efnum, allt frá unga aldri
í föðurhúsum. Leitaðist ég við að kynnast eftir föngum og
fylgjast með í listrænum efnum, og föndraði talsvert við teikn-