Kirkjuritið - 01.12.1963, Blaðsíða 7
KIRKJURITIÐ
437
ingar. Að loknu stúdentsprófi var ég ákveðinn í því að halda
til náms í byggingarlist, en það var árið 1931 að ég innritaðist
í háskólann í Darmstadt í Þýzkalandi, og tók síðar fullnaðar-
próf við Dresdenarháskóla í lok ársins 1936.
„Hafa nokkrir sérstakir mcistarar hrifiS þig, eSa ákveSinn
byggingarstíll? “
Að sjálfsögðu fer ekki lijá því í námi, að ýmsir ágætir meist-
arar liafi talsverð áhrif á mann. Hlýtur svo að vera, bæði á
skólabekk, og þegar starfsárin taka við. í byggingarlist, og raun-
ar öllum listgreinum öðrum, er maður næmur fyrir sterkum
og þroskuðum persónuleika þeirra, sem bezt hafa afrekað, og
rutt eigin brautir á sínu sviði. Óhjákvæmilegt er einnig að slík
álirif geri vart við sig í verkum manns sjálfs þegar frá líður.
Einstök nöfn er erfitt að nefna í f jölbreyttum liópi arkitekta og
kennara á sviði, sem nær yfir jafn margvísleg verkefni á ólík-
um tímum.
Bvggingarstíll er margbreytilegur, og erfitt að finna lionum
samnefnara. Það, sem gott þótti fyrir aðeins 30 árum síðan, er
talsvert öðruvísi metið í dag vegna breyttra viðhorfa í þróun
byggingarmála, byggingarefnis og tækni. Saga byggingarlist-
arinnar skiptist í ákveðin tímabil, livert mótað af samtíð sinni,
—- en þeir meistarar liennar, sem þar og þá voru að verki, og
bezt hafa gert, liafa skilað arfleifð, er seinni kynslóðir bafa
byggt á. Þróunin lielst þannig í liendur að verulegu leyti, og
ábrifa gætir allt frá klassiskum tímum, t. d. Forn-Grikkja, en
byggingarlist þeirra er ein af undirstöðunámsgreinum bygg-
ingarlistar enn í dag.
List verður varla lærð, að öðru leyti en í tæknilegum undir-
stöðuatriðum, sem eru sjálfsögð tæki til eigin og sjálfstæðrar
listsköpunar.
Arkitektinn verður að varast að verða of liáður liinum sí-
breytilegu stílgerðum í byggingarlist, eða handliöfum liennar,
— kunna að velja og hafna. En vissulega gætir stöðugt mikilla
ábrifa í þessum efnum, frá tíma til tírna, frá manni til manns.
„HvaS vildirSu helzt segja um byggingarstíl okkar tíma?“
Á síðustu tveim til þrem áratugum hefur orðið stórstíg breyt-
ing. Ný og fullkomin tækni — nýtt byggingarefni og öll afstaða
L